Til bakaPrenta
Fjallskilanefnd - 7

Haldinn í Molanum fundarherbergi 5,
20.08.2025 og hófst hann kl. 16:00
Fundinn sátu: Þuríður Lillý Sigurðardóttir formaður, Arnór Ari Sigurðsson varaformaður, Marsibil Erlendsdóttir aðalmaður, Sunna Júlía Þórðardóttir aðalmaður, Steinn Björnsson aðalmaður, Aron Leví Beck Rúnarsson embættismaður.
Fundargerð ritaði: Aron Leví Beck, Stjórnandi byggingar-, skipulags- og umhverfisdeildar


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2508090 - Fjallskil og gangnaboð 2025
Fjallskil og gangnaboð 2025. Fjallskilanefnd samþykkir hjá lagt gangnaboð og felur stjórnanda byggingar-, skipulags- og umhverfisdeildar að senda gangnaboðið á fjáreigendur og stjórnsýslu Múlaþings.
3. 1808042 - Fjárréttir í Fjarðabyggð
Fjárréttir í Fjarðabyggð. Fjallskilanefnd leggur til að farið verði sem fyrst í niðurrif á rétt við Breiðdalsá þar sem réttin er ekki notuð og stafar af henni fokhætta. Jafnframt er lagt til að farið verði í lagfæringar og niðurrif að hluta á rétt við Þorgrímsstaði, Breiðdal fyrir haustið 2026. Í Stöðvarfirði er lagt til að farið verði í lítilsháttar lagfæringar á Hvalnesrétt fyrir göngur 2025.

Framkvæmdum við nýja fjárrétt í Norðfirði er nánast lokið og ítrekar fjallskilanefnd að framkvæmdum þar verði lokið fyrir fyrstu göngur haustið 2025.

Fundargerðir til kynningar
2. 2307016 - Erindi til SÍS - Verklagsreglur um smölun ágangsfjár
Regluverk um búfjárbeit, sjónarmið matvælaráðuneytis. Fjallskilanefnd þakkar kynninguna.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:00 

Til bakaPrenta