| |
1. 2302021 - Úrgangsmál 2023 - kynningaefni og fleira | Kynnt hugmynd að útfærslu á úrgangsmálum. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur verkefnastjóra umhverfismála að vinna endanlega tillögu til samþykktar út frá umræðum á fundinum. | | |
|
2. 2201189 - 735 - Deiliskipulag, Dalur athafnasvæði | Umsögnum á kynningartíma svarað vegna Deiliskipulags Dals athafnasvæðis á Eskifirði og skipulagið lagt fram til endanlegrar samþykktar. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir skipulagið og vísa því til endanlegrar afgreiðslu í bæjarstjórn. | 1860-095-MIN-001-V01 Umsagnir á kynningartíma og svör Dalur athafna.pdf | 1860-095-TEK-01-V06-Deiliskipulag Dalur athafnasvæði.pdf | 1860-095-GRG-V01-004_Deiliskipulag Dalur athafnasvæði.pdf | | |
|
3. 2204036 - 735 Deiliskipulag Norðfjarðarvegar og nágrennis að gangamunna á Eskifirði - breyting, minnkun skipulagssvæðis | Umsögnum á kynningartíma svarað vegna Deiliskipulags Norðfjarðarvegar og nágrennis að gangamunna á Eskifirði - breyting, minnkun skipulagssvæðis og skipulagið lagt fram til endanlegrar samþykktar. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir skipulagið og vísa því til endanlegrar afgreiðslu í bæjarstjórn.
| 1860-095-TEK-02-V01_DSK_Breyting-DG1202_PL-e auglysingu.pdf | 1860-095-MIN-002-V01 Umsangir á kynningartíma og svör Deiliskipulagi Norðfjarðarvegar og nágrennis.pdf | | |
|
4. 2303262 - Erindi til Umhverfis og skipulagsnefndar. Uppsetning á sólarsellum, vindmyllum og rafhlöðupakka | Erindi til umhverfis og skipulagsnefndar. Uppsetning á sólarsellum, vindmyllu og rafhlöðupakka. Umhverfis- og skipulagsnefnd líst vel á verkefnið og samþykkir uppsetningu á sólarsellum, vindmyllu og rafhlöðupakka. | Umsókn um byggingarleyfi framkvæmdir á Starmýri 3.pdf | Starmyri 3a_OS.pdf | | |
|
5. 2302173 - Hafnargata 36 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi | Hafnargata 36 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi. Umsögn byggingarfulltrúa lögð fram. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað. | Svör við athugasemdum Ágúst 2023.pdf | álit 21. juli 2023.pdf | | |
|
6. 2308037 - Umsókn um stöðuleyfi | Umsókn um stöðuleyfi fyrir 20 feta gám á gámsvæði Reyðarfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir umsókn um stöðuleyfi fyrir 20 feta gám á nýtt sameiginlegt gámasvæði á Símonartúni, Eskifirði. | | |
|
7. 2308074 - Umsókn um stöðuleyfi | Umsókn um stöðuleyfi fyrir 20 feta gám á gámsvæði Fáskrúðsfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir umsókn um stöðuleyfi fyrir 20 feta gám á gámasvæði á Fáskrúðsfirði. | | |
|
8. 2308136 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Búðareyri 4 | Umsókn Fjarðabyggðar um endurnýjun á lóðaleigusamningi að Búðareyri 4, Reyðarfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að afla frekari gagna. | | |
|
9. 2308146 - Framkvæmdaleyfi vegslóði Mjóafirði | Sótt er um framkvæmdaleyfi til þess að bæta smalaslóða sem liggur frá Reykjum í Mjóafirði út að Krossi. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir fyrirhugaðar framkvæmdir. Skipulags- og umhverfisfulltrúa er falið að gefa út framkvæmdaleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað. | Umsókn um bætingu smalaslóða 2.pdf | | |
|
10. 2308155 - Umsókn um lóð Hjallaleira 8 | Umsókn um lóð fyrir iðnaðarhús að Hjallaleiru 8, Reyðarfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að úthluta lóðinni og vísar til endanlegrar afgreiðslu bæjarráðs. | | |
|
11. 2209189 - Ný staðsetning gámasvæða | Flutningur gámasvæðis Reyðarfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir sameiginlegt gámasvæði fyrir Reyðarfjörð og Eskifjörð á Símonartúni, Eskifirði. | | |
|
12. 2303071 - Rekstur málaflokka 2023 - TRÚNAÐARMÁL | Lagt fram frá fjármálastjóra yfirlit yfir rekstur málaflokka fyrstu 6 mánuði ársins 2023. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að fresta áframhaldandi deiliskipulagsvinnu við íbúabyggð, Dalur 3, Eskifirði og Balinn, Stöðvarfirði. Vinna við deiliskipulag verður sett á fjárhagsáætlun næsta árs. | | |
|