Til bakaPrenta
Bæjarráð - 786

Haldinn að Búðareyri 2, fundarherbergi 1,
27.02.2023 og hófst hann kl. 08:30
Fundinn sátu: Stefán Þór Eysteinsson formaður, Þuríður Lillý Sigurðardóttir varaformaður, Ragnar Sigurðsson aðalmaður, Gunnar Jónsson embættismaður, Þórður Vilberg Guðmundsson embættismaður, Snorri Styrkársson embættismaður.
Fundargerð ritaði: Þórður Vilberg Guðmundsson, forstöðurmaður stjórnsýslu- og upplýsingamála


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2302153 - Skráning fasteigna í Fannardal
Fyrir þessum fundi liggja tölvupóstar frá Hákoni Björnssyni vegna skráningu fasteigna í Fannardal, ásamt minnisblaði fjármálastjóra með samantekt varðandi málið.

Í minnisblaði fjármálastjóra sem liggur fyrir fundinum er málið rakið, allt frá því að það kom fyrst til árið 2006. Samkvæmt því sem þar kemur fram var landeiganda þá strax veitt bráðabirgðaleyfi fyrir umræddum sumarhúsum í landi Fannardals. Langvinnar deilur landeiganda við sveitarfélagið gerðu það síðan að verkum að vinna við deiliskipulag jarðarinnar dróst á langinn, og þar af leiðandi var ekki hægt að ljúka skráningu eigna á svæðinu fyrr en 2018, þegar deiliskipulag svæðisins var samþykkt. Jón Björn Hákonarson hafði enga aðkomu að þeim deilum, var ekki á neinum tímapunkti eigandi jarðarinnar og gat því lítið aðhafst til að ljúka skráningu á sínu húsi.

Jón Björn Hákonarson hefur lýst yfir vilja sínum til að greiða fasteignagjöld af sumarhúsi sínu, afturvirkt. Samkvæmt lögum um álagningu og greiðslu fasteignagjalda ber eiganda fasteignar einungis að greiða fasteignagjöld frá og með skráningardegi eignar. Samkvæmt minnisblaði fjármálastjóra hefur það orðið að samkomulagi að Jón Björn muni greiða fasteignagjöld afturvirkt frá þeim tíma sem samþykkt deiliskipulag lá fyrir. Um er að ræða fasteignagjöld fyrir árin 2019, 2020, 2021 og 2022 samtals að upphæð 72.504 kr.sem er í samræmi við álagningu miðað við fasteignarmat útgefið af HMS.


Minnisblað fjármálastjóra um sumarbústaði í landi Fannardals.pdf
Fannardalur og sumarbústaðir.pdf
2. 2301137 - Fiskeldissjóður - umsóknir 2023
Atvinnu og þróunarstjóri kom á fundinn og kynnti þær umsóknir sem lagðar voru inn til Fiskeldissjóð fyrir starfsárið 2023. Bæjarráð þakkar atvinnu- og þróunarstjóra fyrir kynninguna og vinnu við umsóknir.
3. 2203199 - Tjaldsvæði 2022
Framlagður til kynningar viðauki við samning um rekstur tjaldsvæða í Fjarðabyggð. Viðaukinn felur í sér að gildistími samningsins er styttur, og mun núverandi samningur renna út í október 2023 í stað apríl 2024. Bæjarstjóra falið að undirrita viðaukann.
4. 2301094 - Aðalskipulag breyting vegna skógræktar
Tillaga breytingum á skilmálum landflokksins "Landbúnaðarland" í Aðalskipulagi Fjarðabyggðar vegna stærðar á skógrækt unnið af Alta. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir tillöguna á vinnslustigi og vísar erindinu til afgreiðslu í bæjarráði. Bæjarráð samþykkir að senda breytingu á Aðalskipulaginu til auglýsingar og vísar því til staðfestingar í bæjarstjórn
5. 2302056 - Umsókn um lóð Borgarnaust 5
Framlögð lóðaumsókn Nípukolls ehf. vegna lóðarinnar að Borgnarnaust 5 í Neskaupstað. Umhverfis- og skipulagsnefnd hefur samþykkt lóðaúthlutunina fyrir sitt leyti. Bæjarráð staðfestir úthlutun lóðarinnar.
6. 1703117 - 735 - Deiliskipulag Skíðasvæðisins í Oddsskarði
Vísað frá umhverfis- og skipulagsnefnd Deiliskipulagi Skíðasvæðisins í Oddsskarði til samþykktar og svör við athugasemdum sem bárust á aulýsingatíma. Umhverfis- og skipulagsnefnd hefur svarað athugasemdum og samþykkt skipulagið fyrir sitt leyti. Bæjarráð samþykkir skipulagið og vísar því til staðfestingar bæjarstjórnar.
1860-055-GRE-01-V06-Greinargerð og umhverfisskýrsla fyrir Dsk Oddsskarð.pdf
1860-055-TEK-01-V05-Deiliskipulag_Oddsskard-Uppdráttur.pdf
viðbrögð við athugasemdum.pdf
7. 2210161 - Opinber heimsókn forsetahjónanna til Fjarðabyggðar 2023
Framlagt minnisblað forstöðumanns stjórnsýslu- og upplýsingamála varðandi opinbera heimsókn forseta Íslands til Fjarðabyggðar. Staðfest er að heimsóknin fer fram dagana 13. - 15. apríl 2023. Bæjarráð felur forstöðumanni stjórnsýslu- og upplýsingamála og upplýsingafulltrúa að hafa yfirumsjón með undirbúningi heimsóknarinnar.
Opinber heimsókn forsetahjónanna til Fjarðabyggðar 2023.pdf
9. 2302184 - Starfsmannamál
Fært til trúnaðarmálabókar.
10. 2302093 - Fundargerðir Samtaka orkusveitarfélaga 2023
Fundargerð Samtaka Orkusveitarfélaga nr. 56 frá 17. febrúar lögð fram til kynningar.
Fundarrgerð Samtaka orkusveitarfélaga - nr 56.pdf
Fundargerðir til staðfestingar
10. 2302015F - Umhverfis- og skipulagsnefnd - 19
Fundargerð 19. fundar umhverfis- og skipulagsnefndar frá 21. febrúar lögð fram til afgreiðslu. Bæjarráð staðfestir fundargerðina.
10.1. 1703117 - 735 - Deiliskipulag Skíðasvæðisins í Oddsskarði
10.2. 2302063 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Starmýri 13
10.3. 2302110 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Búðareyri 6
10.4. 2302111 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Búðargata 4
10.5. 2302049 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Bleiksárhlíð 15
10.6. 2302056 - Umsókn um lóð Borgarnaust 5
10.7. 2302057 - Umsókn um lóð Blómsturvellir 31
10.8. 2302054 - Erindi frá íbúum við Búðaveg 24
10.9. 2302016 - Umsókn um breytingar á lóð við Búðareyri 29b á Reyðarfirði
10.10. 2302098 - Umsagnarbeiðni vegna Leafless Apartment Breiðdalsvík
10.11. 2301094 - Aðalskipulag br. skógrækt
10.12. 2302141 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Grímseyri 2
10.13. 2302139 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Grímseyri 4
10.14. 2302145 - Vegna söfnunarstöðvar
11. 2302014F - Hafnarstjórn - 292
Fundargerð 291. fundar hafnarstjórnar frá 20. febrúar lögð fram til afgreiðslu. Bæjarráð staðfestir fundargerðina.
11.1. 1908100 - Verkefni hafnarsjóðs
11.2. 2003091 - Eskifjarðarhöfn - stækkun
11.3. 2208102 - Hafnarsvæðið á Fáskrúðsfirði
11.4. 2012075 - Ný þjónustumiðstöð - Fáskrúðsfjörður
11.5. 2103022 - Markaðs- og kynningarmál Fjarðabyggðarhafna
11.6. 2302027 - Dokk - Skipakerfi
11.7. 2302046 - Beiðni um umsögn v.endurnýjunar heimavigtunarleyfis fiskimjölsverksmiðju
11.8. 2302050 - Ársreikningur Hafnasambands Íslands 2022
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 13:05 

Til bakaPrenta