| |
1. 2301074 - Hinsegin stuðningur í skólaumhverfinu - rannsókn | Davíð Samúelsson, frá samtökunum Hinsegin lífsgæði, mætti til sameiginlegs fundar nefndanna og kynnti rannsókn sem samtökin óska eftir að framkvæma með þátttöku starfsfólks grunnskóla í Fjarðabyggð. Félagið Hinsegin lífsgæði var stofnað í tengslum við verkefnið Hinseginn stuðningur í skólaumhverfinu. Verkefnið er styrkt af mennta- og barnamálaráðuneytinu og jafnréttisnefnd forsætisráðuneytisins og er ætlað að kanna hvað gert er til að stuðla að öryggi og góðri líðan hinsegin nemenda í skólaumhverfinu. Sérstaklega verður horft til þess hvort þörf sé á sérstökum stuðningsaðila fyrir hinsegin nemendur með sérþekkingu á málefnum hinsegin fólks. Verkefnið verður unnið í nánu samstarfi við lektor í kennslu- og kynjafræðum við Háskólann á Akureyri og ráðgjöfum sem starfa að jafnréttis- og menntunarmálum í mennta- og barnamálaráðuneytinu. Fræðsluyfirvöld Fjarðabyggðar heimila fulltrúum verkefnisins að leita eftir samstarfi við skólastjórnendur um þátttöku í verkefninu með það fyrir augum að þeir tilnefni fulltrúa í hverjum skóla fyrir sig til að taka þátt í því. Samkvæmt samstarfssamningi Hinsegin lífsgæða við mennta- og barnamálaráðuneytið eru verklok áætluð í apríl 2024. | | |
|
2. 1808078 - Stefnumörkun í fræðslu- og frístundamálum í Fjarðabyggð | Haustið 2022 var skipaður sex manna starfshópur, þrír fulltrúar úr fræðslunefnd og þrír fulltrúar úr íþrótta- og tómstundanefnd til þess að vinna að áherslum í fræðslu- og frístundamálum Fjarðabyggðar fyrir árin 2023-2025. Starfshópurinn leitaði eftir hugmyndum hjá starfsfólki fræðslu- og frístundastofnana, 120. fundur fræðslunefndar 10.01.2023 241 Fjarðaforeldrum, íþróttafélögum, ungmennaráði, öldungaráði og fleirum. Fjölmörgum hugmyndum var skilað til starfshópsins sem mótaði í framhaldi drög að áherslum til þriggja ára. Drög að áherslum voru kynnt á opnum kynningarfundi í Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar mánudaginn 9. janúar þar sem þátttakendur sögðu sitt álit og komu með ábendingar um breytingar. Fundurinn var í streymi þannig að þeir sem ekki gátu mætt til fundarins gátu tekið þátt í gegnum netið. Fyrir sameiginlegum fundi fræðslunefndar, íþrótta- og tómstundanefndar og félagsmálanefndar liggja áherslur í fræðslu- og frístundamálum 2023-2025 með áorðnum breytingum eftir kynningarfundinn. Félagsmálanefnd samþykkir fyrirliggjandi áherslur fyrir sitt leyti. | | |
|
3. 2301026 - Samvinna Fjarðabyggðar og Hornafjarðar um barnaverndarþjónustu | Erindi frá Hornafirði um samstarf við barnaverndaþjónustu Fjarðabyggðar. | Tölvupóstur sveitarfélagsins Hornafjarðar.pdf | | |
|
4. 2301002 - Undirritaður samningur um rekstur umdæmisráðs Landsbyggða barnavernd | Sviðstjóri fjölskyldusviðs var með kynningu á nýju fyrirkomulagi varðandi breytingu á barnaverndarlögum sem tóku gildi um áramótin 2023. Lögin varða breytingar á barnaverndarnefnd þannig að verksvið hennar skiptist annars vegar í verkefni umdæmisráðs, sem fer með þvingunarúrræði og hinsvegar utanumhald um þjónustu og upplýsingagjöf til stjórnsýslu sem fellur undir félagsmálanefnd. | Erindisbréf fyrir valnefnd.pdf | Skipunarbréf í umdæmisráð Landsbyggðar 2022.pdf | | |
|
5. 2212065 - Vegna valdaframsal barnaverndarþjónustu | Samþykkt um fullnaðarafgreiðslu mála hjá Barnaverndarþjónustu Fjarðabyggðar. | Samþykkt um fullnaðarafgreiðslu mála hjá Barnaverndarþjónustu.pdf | | |
|
7. 2212121 - Tillaga til þingsályktunar um aðgerðaáætlun um þjónustu við eldra fólk 2023-2027 | Sviðstjóri fjölskyldusviðs kynnir tillögu að þingsáætlunar um aðgerðaáætlun í þjónustu við eldra fólk 2023-2027. Starfsfólki félasgmálanefndar er falið að skila inn umsögn í Samráðsgátt í samvinnu við félagsmálanefnd. | | |
|
8. 2211172 - Drög að reglum 2023 | Tillögur að breytingum á reglum um þjónustuíbúðir aldraðra kynntar. Félagsmálanefnd samþykkir breytingar á reglum Fjarðabyggðar um þjónustuíbúðir fyrir eldra fólk. Málinu er vísað til bæjarráðs. | Minnisblað, þjónustuíbúðir.pdf | Reglur um þjónustuíbúðir (track changes).pdf | Reglur um þjónustuíbúðir, breyttar.pdf | | |
|
9. 2211172 - Drög að reglum 2023 | Kynntar eru tillögur að breytingum á gjaldskrá um stuðningsþjónustu. Tillögur að breytingum um stuðningsþjónustu eru samþykktar og vísað til bærjarráðs. | Minnisblað, gjaldskrá stuðningsþjónustu.pdf | Gjaldskrá, stuðningsþjónusta, track ch.pdf | Gjaldskrá stuðningsþjónustu, breytt.pdf | | |
|