Til bakaPrenta
Ungmennaráð - 14

Haldinn að Búðareyri 2, fundarherbergi 1,
08.05.2024 og hófst hann kl. 16:30
Fundinn sátu: Elín Eik Guðjónsdóttir aðalmaður, Margarette B. Sveinbjörnsdóttir aðalmaður, Tinna Rut Hjartardóttir aðalmaður, Emilía Björk Ulathowska aðalmaður, Pálína Hrönn Garðarsdóttir aðalmaður, Unna Dís Guðmundsdóttir aðalmaður, Eyvör Rán Ívarsdóttir aðalmaður, Sævar Emil Ragnarsson varamaður, Hólmfríður M. Benediktsdóttir embættismaður, Magnús Árni Gunnarsson .
Fundargerð ritaði: Hólmfríður M. Benediktsdóttir, 


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2404072 - Kuldaboli 2024
Ungmennaráð vill að Kuldaboli haldi áfram að vera yfir nóttu en bendir á að hugsanlegt sé betra að nýta íþróttahúsið á Reyðarfirði sem gistipláss. Við það eykst öryggi þar sem sýnileikinn yrði meiri yfir ungmennum. Einnig færi betur um ungmennin í íþróttahúsinu þar sem mikill kuldi er í höllinni.
2. 2405024 - Heimsókn lögreglu til ungmennaráðs
Lögreglan kom í heimsókn til ungmennaráðs í spjall og fá ábendingar um hvernig megi betur ná til ungs fólks.
3. 2405025 - Kynning á starfamessu til ungmennaráðs
Starfamessa var kynnt fyrir ungmennaráði og ritaði ungmennaráð niður nokkra punkta fyrir Starfamessuna. Ungmennaráð hefur einnig áhuga á að koma að skipulagi Starfamessu 2024.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:30 

Til bakaPrenta