Haldinn í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði,
28.07.2023 og hófst hann kl. 10:00
Fundinn sátu: Þuríður Lillý Sigurðardóttir formaður, Sigurður Max Jónsson varamaður, Marsibil Erlendsdóttir aðalmaður, Sunna Júlía Þórðardóttir aðalmaður, Steinn Björnsson aðalmaður, Gunnar Jónsson embættismaður.
Fundargerð ritaði: Gunnar Jónsson, bæjarritari
Dagskrá:
Almenn mál
1. 2306063 - Beiðni um smölun ágangsfjár í Óseyri Stöðvarfirði
Vísað frá bæjarráði bréfi lögmanns landeiganda Óseyrar þar sem ítrekuð er krafa um smölun landsins. Jafnframt er lögð fram álitsgerð frá Lögmannsstofu Norðurlands en fjallskilanefnd óskaði eftir álitsgerð á síðasta fundi þar sem mikil réttaróvissa er í málaflokknum.
Fjallskilanefnd telur í ljósi framlagðs álits lögmannsstofunnar að sveitarfélaginu beri ekki að verða við kröfu landeiganda Óseyrar um smölun lands hans. Fjallskilanefnd tekur ekki afstöðu til erindis sem fjallar um bótaskyldu sveitarfélagsins. Þá telur fjallskilanefnd að sterkar líkur séu á að sauðfé komi frá Breiðdal en jafnframt hafi fé áður komið fram í Stöðvarfirði frá Héraði og Fáskrúðsfirði. Fjallskilanefnd vísar málinu til bæjarráðs.