Til bakaPrenta
Bæjarráð - 793

Haldinn í Egilsbraut 1, Neskaupstað,
05.04.2023 og hófst hann kl. 09:00
Fundinn sátu: Stefán Þór Eysteinsson formaður, Þuríður Lillý Sigurðardóttir varaformaður, Ragnar Sigurðsson aðalmaður, Gunnar Jónsson embættismaður, Jóna Árný Þórðardóttir bæjarstjóri.
Fundargerð ritaði: Gunnar Jónsson, bæjarritari
Þuríður Lillý var í fjarfundabúnaði.


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2303415 - Ofanflóðahætta í Fjarðabyggð - Mars 2023
Haldinn var stöðufundur með fulltrúum þjónustumiðstöðvar almannavarna á Norðfirði þar sem farið var yfir verkefni sem unnið hefur verið að frá því miðstöðin hóf rekstur. Jafnframt var farið yfir verkefni Náttúruhamfaratrygginga vegna vettvangsins og samskipti við íbúa vegna tjónamats ofl.
 
Gestir
Vagn Kristjánsson frá Almannavörnum - 00:00
Sviðsstjóri fjölskyldusviðs - 00:00
Ingibjörg Lilja Ómarsdóttir frá almannavörnum - 00:00
Aðalheiður Jónsdóttir frá Rauða Krossinum - 00:00
Jón Örvar Bjarnason frá Náttúruhamfaratryggingu - 00:00
3. 2303407 - Breyting á verðskrá vegna gufubaðsklúbba í sundlaugum Fjarðabyggðar
Stefán Þór Eysteinsson vék af fundi við umfjöllun og afgreiðslu dagskrárliðar.
Vísað frá íþrótta- og tómstundanefnd tillögu að breytingu á gjaldskrá sundlauga vegna gufubaðsklúbba.
Bæjarráð samþykkir að vísa tillögunni til næstu fjárhagsáætlunargerðar og heildarendurskoðunar gjaldskrána.
Breytinga á gjaldskrá sundlauga vegna gufubaðsklúbba.pdf
Almenn mál - umsagnir og vísanir
2. 2304010 - Aðalfundur SSA 2023
Boðað til 57. aðalfundar Sambands sveitarfélaga á Austurlandi (SSA). Verður fundurinn haldinn í Valaskjálf á Egilsstöðum þann 3. maí nk. og hefst hann kl. 10:00.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 11:30 

Til bakaPrenta