| |
1. 2209031 - Yfirlýsing vegna kaupréttar | Framhald umræða um nýtingu mögulegs forkaupsréttar að Hafnargötu 6 á Reyðarfirði. Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að hefja viðræður við eiganda fasteignarinnar um nýtingu mögulegs forkaupsréttar og leggja fyrir bæjarráð að nýju niðurstöður viðræðna. Jafnframt að ræða við leigutaka um framhald leigu. Kristinn Þór Jónasson, fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, situr hjá við afgreiðslu málsins. | | |
|
2. 2309098 - Haustþing SSA 2023 | Boðað er til haustþings Sambands sveitarfélag á Austurlandi sem haldið verður í Fljótsdal fimmtudag 28. september til 29. september. Fram lagt og kynnt en fulltrúar Fjarðabyggðar eru aðalmenn bæjarstjórnar. | | |
|
3. 2309075 - Samgöngur í Fjarðabyggð | Framhald umræðu um samgöngumál í Fjarðabyggð, frá síðasta fundi bæjarráðs, um tillögu Sjálfstæðisflokksins í Fjarðabyggð að bókun um samgöngumál. Kristinn Þór Jónsson leggur fram tillögu Ragnars Sigurðssonar Sjálfstæðisflokki að bókun: "Fjarðabyggð leggur til breytta forgangsröðun í samgönguáætlun með göngum um Suðurfirði í stað uppbyggingar á Suðurfjarðarvegi og hringtengingar frá Neskaupstað til Seyðisfjarðar. Sú breytta forgangsröðun er til hagræðingar í núgildandi samgönguáætlun sem og í vetrarþjónustu, eflir og stækkar atvinnusvæðið, gerir Fjarðabyggð að einni heild og eflir Suðurfirði. Bæjarstjóra falið að óska eftir áherslubreytingum í svæðisskipulagi Austurlands." Bókun frá fulltrúum Fjarðalista og Framsóknar í bæjarráði. "Bæjaryfirvöld í Fjarðabyggð hafa um árabil verið með það í forgrunni við samgönguyfirvöld að ráðast þurfi í endurbætur á Suðurfjarðarvegi og slíkt þoli ekki orðið neina bið líkt og kom fram í umsögn Fjarðabyggðar við drögum að samgönguáætlun sem samþykkt var samhljóða í bæjarstjórn í ágúst sl. Í forgangi er að gera nýjar brýr í botni fjarðanna sem Suðurfjarðarvegur liggur um í stað hættulegra einbreiðra brúa sem í þokkabót eru með þyngdartakmörkum sem farið er að standa samfélögunum í suðurhluta Fjarðabyggðar fyrir þrifum. Er hér um að ræða brú yfir Sléttuá í Reyðarfirði, brýr í botni Fáskrúðsfjarðar og brú í botni Stöðvarfjarðar. Samhliða því að gerðar verði nýjar tvíbreiðar brýr þarf að fara í endurbætur á veginum. Á boðaðri samgönguáætlun sem fer til umræðu á Alþingi nú í haust er brýnt að þessum framkvæmdum verði forgangsraðað fremst í komandi samgönguáætlun enda til orðinn ýmis gögn hjá samgönguyfirvöldum sem flýtt geta þessum framkvæmdum og sérstaklega þá gerð áðurnefndra brúa sem þola enga bið lengur. Sé vilji til hjá samgönguyfirvöldum að skoða fleiri kosti í endurgerð Suðurfjarðarvegar eins og jarðgöng þá leggst sveitarfélagið Fjarðabyggð ekki gegn slíku en með því fororði að slík skoðun má ekki fresta þessum brýnu framkvæmdum lengur. Samgöngubætur á Suðurfjarðarvegi þola enga bið lengur."
| Greinargerð_fyrir_bæjarrad.pdf | Austurland-vefutgafan.pdf | fask_stö.pdf | sto_brei.pdf | | |
|
4. 2305145 - Jafnréttisstefna 2023-2026 | Vísað frá félagsmálanefnd til afgreiðslu jafnréttisstefnu Fjarðabyggðar 2023 til 2026 en hún hefur verið uppfærð milli umræðna. Bæjarráð samþykkir jafnréttisstefnu 2023 til 2026 og vísar henni til afgreiðslu við síðari umræðu í bæjarstjórn. | Jafnréttisstefna 2023-2026 lokaskjal.pdf | | |
|
5. 2305266 - Slökkvilið Fjarðabyggðar - málefni | Farið yfir málefni slökkviliðs. | | | Gestir | Aðstoðarslökkviliðsstjóri - 00:00 | Aðalvarðstjóri - 00:00 | |
|
6. 2301183 - Fundargerðir Samband Íslenskra sveitarfélaga 2023 | Fundargerð 932. fundar stjórnar Sambands Íslenskra sveitarfélaga lögð fram til kynningar. | stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga - 932.pdf | | |
|
| |
7. 2309011F - Fræðslunefnd - 129 | Fundargerð 129. fundar fræðslunefndar lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu. | 7.1. 2303071 - Rekstur málaflokka 2023 - TRÚNAÐARMÁL | 7.2. 2305048 - Starfs- og fjárhagsáætlun í fræðslumálum 2024 | 7.3. 2305048 - Starfs- og fjárhagsáætlun í fræðslumálum 2024 | 7.4. 2302067 - Úthlutunarreglur grunnskóla í Fjarðabyggð | 7.5. 2308142 - Öruggara Austurland | | |
|
8. 2309010F - Hafnarstjórn - 300 | Fundargerð 300. fundar hafnarstjórnar lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu. | 8.1. 2305073 - Starfs- og fjárhagsáætlun hafnarstjórnar 2024 | 8.2. 2308165 - Umsókn um styrk til menningarverkefna 2023 | 8.3. 2308007 - Umsókn um leyfi fyrir uppsetningu skilta | 8.4. 2307133 - Styrkumsókn vegna endurnýjunar utanborðsmótora | | |
|
9. 2309008F - Stjórn menningarstofu og safnastofnunar - 11 | Fundargerð 12. fundar stjórnar menningarstofu- og safnastofnunar tekin til umfjöllunar og afgreiðslu. | 9.1. 2303071 - Rekstur málaflokka 2023 - TRÚNAÐARMÁL | 9.2. 2305067 - Starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar menningarstofu- og safnastofnunar 2024 | 9.3. 2309072 - Uppbyggingarsjóður 2023 - umsóknir og styrkveitingar | 9.4. 2301047 - Verkefni menningarstofu 2023 | 9.5. 2211009 - Endurskoðun Menningarstefnu Fjarðabyggðar | 9.6. 2307118 - Björn Pálsson sjúkraflugmaður - beiðni um styrk vegna bókaútgáfu | | |
|
10. 2309004F - Umhverfis- og skipulagsnefnd - 34 | Fundargerð 34. fundar umhverfis- og skipulagsnefndar lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu. | 10.1. 2305072 - Starfs- og fjárhagsáætlun umhverfis- og skipulagsnefndar 2024 | 10.2. 2309060 - Umsókn um lóð Stekkjargata 5 Nesk | 10.3. 2308005 - Deiliskipulag breyting Miðbær Nesk v. fótboltavöllur | 10.4. 2308172 - Breyting á deiliskipulagi Fólkvangur Neskaupstaðar | 10.5. 2301019 - Deiliskipulag austurhluta Breiðdalsvíkur | 10.6. 2308136 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Búðareyri 4 | 10.7. 2308073 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Gauksmýri 1 | 10.8. 2307089 - Sólbakki 2 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi | 10.9. 2309014 - Framkvæmdaleyfi - Stöðfirskir báta og skip | 10.10. 2309019 - Erindi vegna gámasvæðis á Reyðarfirði | 10.11. 2309030 - Umsókn um leyfi til losunar efnis | 10.12. 2308164 - Mála ruslatunnur | 10.13. 2309068 - Öryggi við hesthúsahverfi í Reyðarfirði | 10.14. 2302021 - Úrgangsmál 2023 - kynningaefni og fleira | | |
|
11. 2309006F - Íþrótta- og tómstundanefnd - 123 | Fundargerð 129. fundar íþrótta- og tómstundanefndar lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu. | 11.1. 2303071 - Rekstur málaflokka 2023 - TRÚNAÐARMÁL | 11.2. 2305047 - Starfs- og fjárhagsáætlun íþrótta- og tómstunda 2024 | 11.3. 2307028 - Sumarfrístund 2023 | | |
|