Til bakaPrenta
Bæjarráð - 813

Haldinn í Molanum fundarherbergi 5,
18.09.2023 og hófst hann kl. 08:30
Fundinn sátu: Stefán Þór Eysteinsson formaður, Jón Björn Hákonarson , Kristinn Þór Jónasson varamaður, Jón Björn Hákonarson , Jóna Árný Þórðardóttir bæjarstjóri, Gunnar Jónsson embættismaður, Þórður Vilberg Guðmundsson embættismaður, Snorri Styrkársson embættismaður.
Fundargerð ritaði: Gunnar Jónsson, bæjarritari


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2209031 - Yfirlýsing vegna kaupréttar
Framhald umræða um nýtingu mögulegs forkaupsréttar að Hafnargötu 6 á Reyðarfirði.
Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að hefja viðræður við eiganda fasteignarinnar um nýtingu mögulegs forkaupsréttar og leggja fyrir bæjarráð að nýju niðurstöður viðræðna. Jafnframt að ræða við leigutaka um framhald leigu. Kristinn Þór Jónasson, fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, situr hjá við afgreiðslu málsins.
2. 2309098 - Haustþing SSA 2023
Boðað er til haustþings Sambands sveitarfélag á Austurlandi sem haldið verður í Fljótsdal fimmtudag 28. september til 29. september.
Fram lagt og kynnt en fulltrúar Fjarðabyggðar eru aðalmenn bæjarstjórnar.
3. 2309075 - Samgöngur í Fjarðabyggð
Framhald umræðu um samgöngumál í Fjarðabyggð, frá síðasta fundi bæjarráðs, um tillögu Sjálfstæðisflokksins í Fjarðabyggð að bókun um samgöngumál.
Kristinn Þór Jónsson leggur fram tillögu Ragnars Sigurðssonar Sjálfstæðisflokki að bókun:
"Fjarðabyggð leggur til breytta forgangsröðun í samgönguáætlun með göngum um Suðurfirði í stað uppbyggingar á Suðurfjarðarvegi og hringtengingar frá Neskaupstað til Seyðisfjarðar. Sú breytta forgangsröðun er til hagræðingar í núgildandi samgönguáætlun sem og í vetrarþjónustu, eflir og stækkar atvinnusvæðið, gerir Fjarðabyggð að einni heild og eflir Suðurfirði.
Bæjarstjóra falið að óska eftir áherslubreytingum í svæðisskipulagi Austurlands."
Bókun frá fulltrúum Fjarðalista og Framsóknar í bæjarráði.
"Bæjaryfirvöld í Fjarðabyggð hafa um árabil verið með það í forgrunni við samgönguyfirvöld að ráðast þurfi í endurbætur á Suðurfjarðarvegi og slíkt þoli ekki orðið neina bið líkt og kom fram í umsögn Fjarðabyggðar við drögum að samgönguáætlun sem samþykkt var samhljóða í bæjarstjórn í ágúst sl. Í forgangi er að gera nýjar brýr í botni fjarðanna sem Suðurfjarðarvegur liggur um í stað hættulegra einbreiðra brúa sem í þokkabót eru með þyngdartakmörkum sem farið er að standa samfélögunum í suðurhluta Fjarðabyggðar fyrir þrifum. Er hér um að ræða brú yfir Sléttuá í Reyðarfirði, brýr í botni Fáskrúðsfjarðar og brú í botni Stöðvarfjarðar. Samhliða því að gerðar verði nýjar tvíbreiðar brýr þarf að fara í endurbætur á veginum. Á boðaðri samgönguáætlun sem fer til umræðu á Alþingi nú í haust er brýnt að þessum framkvæmdum verði forgangsraðað fremst í komandi samgönguáætlun enda til orðinn ýmis gögn hjá samgönguyfirvöldum sem flýtt geta þessum framkvæmdum og sérstaklega þá gerð áðurnefndra brúa sem þola enga bið lengur. Sé vilji til hjá samgönguyfirvöldum að skoða fleiri kosti í endurgerð Suðurfjarðarvegar eins og jarðgöng þá leggst sveitarfélagið Fjarðabyggð ekki gegn slíku en með því fororði að slík skoðun má ekki fresta þessum brýnu framkvæmdum lengur. Samgöngubætur á Suðurfjarðarvegi þola enga bið lengur."
Greinargerð_fyrir_bæjarrad.pdf
Austurland-vefutgafan.pdf
fask_stö.pdf
sto_brei.pdf
4. 2305145 - Jafnréttisstefna 2023-2026
Vísað frá félagsmálanefnd til afgreiðslu jafnréttisstefnu Fjarðabyggðar 2023 til 2026 en hún hefur verið uppfærð milli umræðna.
Bæjarráð samþykkir jafnréttisstefnu 2023 til 2026 og vísar henni til afgreiðslu við síðari umræðu í bæjarstjórn.
Jafnréttisstefna 2023-2026 lokaskjal.pdf
5. 2305266 - Slökkvilið Fjarðabyggðar - málefni
Farið yfir málefni slökkviliðs.
 
Gestir
Aðstoðarslökkviliðsstjóri - 00:00
Aðalvarðstjóri - 00:00
6. 2301183 - Fundargerðir Samband Íslenskra sveitarfélaga 2023
Fundargerð 932. fundar stjórnar Sambands Íslenskra sveitarfélaga lögð fram til kynningar.
stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga - 932.pdf
Fundargerðir til staðfestingar
7. 2309011F - Fræðslunefnd - 129
Fundargerð 129. fundar fræðslunefndar lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
7.1. 2303071 - Rekstur málaflokka 2023 - TRÚNAÐARMÁL
7.2. 2305048 - Starfs- og fjárhagsáætlun í fræðslumálum 2024
7.3. 2305048 - Starfs- og fjárhagsáætlun í fræðslumálum 2024
7.4. 2302067 - Úthlutunarreglur grunnskóla í Fjarðabyggð
7.5. 2308142 - Öruggara Austurland
8. 2309010F - Hafnarstjórn - 300
Fundargerð 300. fundar hafnarstjórnar lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
8.1. 2305073 - Starfs- og fjárhagsáætlun hafnarstjórnar 2024
8.2. 2308165 - Umsókn um styrk til menningarverkefna 2023
8.3. 2308007 - Umsókn um leyfi fyrir uppsetningu skilta
8.4. 2307133 - Styrkumsókn vegna endurnýjunar utanborðsmótora
9. 2309008F - Stjórn menningarstofu og safnastofnunar - 11
Fundargerð 12. fundar stjórnar menningarstofu- og safnastofnunar tekin til umfjöllunar og afgreiðslu.
9.1. 2303071 - Rekstur málaflokka 2023 - TRÚNAÐARMÁL
9.2. 2305067 - Starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar menningarstofu- og safnastofnunar 2024
9.3. 2309072 - Uppbyggingarsjóður 2023 - umsóknir og styrkveitingar
9.4. 2301047 - Verkefni menningarstofu 2023
9.5. 2211009 - Endurskoðun Menningarstefnu Fjarðabyggðar
9.6. 2307118 - Björn Pálsson sjúkraflugmaður - beiðni um styrk vegna bókaútgáfu
10. 2309004F - Umhverfis- og skipulagsnefnd - 34
Fundargerð 34. fundar umhverfis- og skipulagsnefndar lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
10.1. 2305072 - Starfs- og fjárhagsáætlun umhverfis- og skipulagsnefndar 2024
10.2. 2309060 - Umsókn um lóð Stekkjargata 5 Nesk
10.3. 2308005 - Deiliskipulag breyting Miðbær Nesk v. fótboltavöllur
10.4. 2308172 - Breyting á deiliskipulagi Fólkvangur Neskaupstaðar
10.5. 2301019 - Deiliskipulag austurhluta Breiðdalsvíkur
10.6. 2308136 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Búðareyri 4
10.7. 2308073 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Gauksmýri 1
10.8. 2307089 - Sólbakki 2 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
10.9. 2309014 - Framkvæmdaleyfi - Stöðfirskir báta og skip
10.10. 2309019 - Erindi vegna gámasvæðis á Reyðarfirði
10.11. 2309030 - Umsókn um leyfi til losunar efnis
10.12. 2308164 - Mála ruslatunnur
10.13. 2309068 - Öryggi við hesthúsahverfi í Reyðarfirði
10.14. 2302021 - Úrgangsmál 2023 - kynningaefni og fleira
11. 2309006F - Íþrótta- og tómstundanefnd - 123
Fundargerð 129. fundar íþrótta- og tómstundanefndar lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
11.1. 2303071 - Rekstur málaflokka 2023 - TRÚNAÐARMÁL
11.2. 2305047 - Starfs- og fjárhagsáætlun íþrótta- og tómstunda 2024
11.3. 2307028 - Sumarfrístund 2023
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl.  

Til bakaPrenta