| |
1. 2210143 - Samskiptastefna 2022-2026 | Drögum að samskipta- og vefstefnu Fjarðabyggðar ásamt stefnu um innri samskipti var vísað frá bæjarstjórn til umfjöllunar fagnefnda. Fræðslunefnd óskar eftir umsögn skólastjórnenda. Frekari umræðu frestað til næsta fundar. | Stefna innri samskipti_FJB 2023.pdf | Vefstefna Fjarðabyggðar.pdf | Samskiptastefna Fjarðabyggðar.pdf | | |
|
2. 2302067 - Úthlutunarreglur grunnskóla í Fjarðabyggð | Farið var yfir kynningu Fjarðabyggðar sem kynnt var fulltrúum Sambands íslenskra sveitarfélaga og Mennta- og barnamálaráðuneytinu og fulltrúum sveitarfélaga á Austurlandi 24. maí. Um er að ræða sjálfsmatstæki sem ætlað er til að auðvelda ákvarðanatöku í úthlutun fjármagns til grunnskóla. Lagt fram til kynningar. | | |
|
3. 2305272 - Fagháskólanám í leikskólafræði | Farið var yfir kynningu fulltrúa Háskólans á Akureyri, HA, á fagháskólanámi í leikskólafræði sem verður hluti af námsframboði HA og HÍ næsta skólaár. Fræðslunefnd þakkar kynninguna og fagnar því að slíkt nám sé í boði fyrir starfsfólk leikskóla. | | |
|
4. 2305048 - Starfs- og fjárhagsáætlun í fræðslumálum 2024 | Farið yfir drög að áætlun og skoðaðar leiðir til hagræðingar. Frekari umræðu frestað til næsta fundar nefndarinnar 14. júní næstkomandi. | | |
|