Til bakaPrenta
Stjórn menningarstofu og safnastofnunar - 12

Haldinn í Molanum fundarherbergi 5,
26.09.2023 og hófst hann kl. 16:30
Fundinn sátu: Birta Sæmundsdóttir formaður, Margrét Sigfúsdóttir varamaður, Elsa Guðjónsdóttir aðalmaður, Ingunn Eir Andrésdóttir varamaður, Benedikt Jónsson aðalmaður, Gunnar Jónsson embættismaður, Jóhann Ágúst Jóhannsson embættismaður.
Fundargerð ritaði: Gunnar Jónsson, bæjarritari


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2305067 - Starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar menningarstofu- og safnastofnunar 2024
Farið yfir gerð fjárhagsáætlunar, drög starfsáætlunar og áherslur en áætlun verður tekin fyrir á næsta fundi stjórnarinnar.
2. 2309058 - Gjaldskrá félagsheimila 2024
Gjaldskrá félagsheimila 2024 lögð fram til umfjöllunar.
Stjórn samþykkir að fela bæjarritara og forstöðumanni menningarstofu að ræða við Slysavarnardeildina Hafdísi um samræmingu gjaldskrár.

3. 2309057 - Gjaldskrá bókasafna 2024
Gjaldskrá bókasafna 2024 lögð fram til umfjöllunar.
Stjórnin óskar eftir upplýsingum um sektargjöld vegna bókaskila. Jafnframt er bæjarritara falið að leita álits forstöðumanna á gjaldskrármálum.
4. 2309204 - Gjaldskrá safna í Fjarðabyggð 2025
Gjaldskrá minjasafna 2025 lögð fram til umfjöllunar.
Stjórnin samþykkir að hækka alla gjaldskrárliði um 100 kr.
Stjórnin leggur til að felld verði út ákvæði um gjaldfrjálsan aðgang að söfnum gegn framvísun Fjarðabyggðarkorts en í stað þess verði tekin upp nýr gjaldskrárliður sem gildi í tiltekið safn og veiti aðgang í eitt ár að því safni. Gjaldið nemi 2.500 kr. Vísað til bæjarráðs.
5. 2211009 - Endurskoðun Menningarstefnu Fjarðabyggðar
Tekið fyrir að nýju umræða um menningarmót sem samþykkt var að halda í nóvember á tveimur stöðum sem hluta að undirbúningi fyrir endurskoðun menningarstefnu Fjarðabyggðar.
Menningarmót verða tvö á milli kl. 17:00 og 18:30. Þann 14. nóvember í Tónlistarmiðstöðinni á Eskifirði og 15. nóvember í Skrúð á Fáskrúðsfirði.
Menningarmót Menningarstofu - Tillaga SMS 2023_September.pdf
6. 1811023 - Lúðvíkshúsið endurbyggt
Farið yfir stöðu mála í endurbyggingu Lúðvíkshúss að Þiljuvöllum og áætlanir um starfsemi þess.
Stjórn vísar til mannvirkja og veitunefndar að framkvæmdum við endurbyggingu Lúðvíkshúss verði lokið á árinu 2024 og gert verði ráð fyrir fjármagni til verksins í fjárfestingaráætlun.
Utan dagskrár rædd tilnefning til menningarverðlauna SSA.


Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:25 

Til bakaPrenta