| |
1. 2303071 - Rekstur málaflokka 2023 - TRÚNAÐARMÁL | Lagt fram sem trúnaðarmál málaflokkayfirlit yfir rekstur og fjárfestingar janúar - júní 2023 auk yfirlits yfir launakostnað og skatttekjur janúar - júlí 2023. Framlagt og kynnt. | | |
|
2. 2305061 - Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2024 | Lagt fram minnisblað og tillögur fjármálastjóra um forsendur tekju- og gjaldaliða fyrir fjárhagsáætlun 2024 - 2027 auk nýjustu þjóðhagspár, dagsetninga í áætlunarferlinu og niðurstöðu bæjarráð frá í júlí um viðbætur í úthlutaðan ramma. Fjármálastjóra falið að vinna málið áfram á grunni tillagna í minnisblaðinu. | | |
|
3. 2303238 - Stöðuúttekt stjórnsýslunnar 2023 | Fulltrúar frá Deloitte komu á fund bæjarráð kl. 10:00 og farið var yfir stöðu mála í vinnu við stöðuúttekt stjórnsýslunnar. | | |
|
4. 2209031 - Yfirlýsing vegna kaupréttar | Tekin fyrir að nýju matsgerð dómskvaddra matsmanna vegna fasteignarinnar Hafnargötu 6 á Reyðarfirði. Einnig er lagt fram minnisblað lögmanns sveitarfélagsins vegna matsgerðarinnar.
Bæjarstjóra falið að vinna málið áfram á grundvelli minnisblaðsins og umræðna á fundinum. | | |
|
5. 2301057 - Eignarsjóður 735 Grunnskólinn Eskifirði | Framlagt minnisblað fasteigna- og framkvæmdafulltrúa þar sem farið var yfir stöðu mála vegna framkvæmda við Eskifjarðarskóla. | | |
|
6. 2307046 - Umsókn um lóð Sólbakki 2-6 | Framlögð umsókn Nestaks ehf. vegna lóðarinnar að Sólbakka 2-6 í Neskaupstað. Bæjarráð samþykkir úthlutun lóðarinnar. | | |
|
7. 2308021 - Umsókn um lóð Sæbakki 17 | Framlögð umsókn Þórarins Elí Helgasonar vegna lóðarinnar að Sæbakka 17 í Neskaupstað. Bæjarráð samþykkir úthlutun lóðarinnar. | | |
|
8. 2308059 - Umsókn um lóð Búðarmelur 7 a-b-c | Framlögð umsókn Róberts Óskars Sigurvaldasonar, f.h. Búðinga ehf vegna lóðarinnar að Búðarmel 7a-c á Reyðarfirði.
Bæjarráð samþykkir úthlutun lóðarinnar. | | |
|
9. 2308007 - Umsókn um leyfi fyrir uppsetningu skilta | Vísað frá umhverfis- og skipulagsnefnd erindi er varðar leyfi til uppsetningu skilta um sögu Stöðfirskra báta og skipa, og styrk til uppsetningarinnar. Bæjarráð samþykkir að styrkja verkefnið um 25.000 kr. af liðnum óráðstafað. | Stöðfirskir bátar og skip - kynning.pdf | Umsókn um leyfi fyrir skiltum.pdf | | |
|
10. 2308080 - Beiði Loðnuvinnslunar til afnota íþróttahús Fáskrúðsfjarðar vegna Árshátíðar | Framlagt erindi Loðnuvinnslunar vegna beiðni um leigu á íþróttahúsinu á Fáskúðsfirði. Einnig minnsblað deildarstjóra íþróttamannvirkja varðandi erindið. Bæjarráð samþykkir að leigja íþróttahúsið. | | |
|
11. 2308082 - Arctic Circle þing Hringborðsins 19.-21. október 2023 | Boð um þátttöku á tíunda þingi Arctic Circle, Hringborði Norðurslóða, sem fram fer dagana 19. - 21. október 2023. Lagt fram til kynningar. | | |
|
12. 2304052 - Ársfundur Starfsendurhæfingar Austurlands 2023 | Gögn frá ársfundi StarfA 2023 lögð fram til kynningar. | | |
|
| |
13. 2306012F - Mannvirkja- og veitunefnd - 16 | Fundargerð 16. fundar mannvirkja- og veitunefndar frá 14. júní lögð fram til staðfestingar | 13.1. 2305071 - Starfs- og fjárhagsáætlun mannvirkja- og veitunefndar 2024 | | |
|