| |
1. 2209012 - Ráðstefnan Lagarlíf 2022 | Lagt fram til kynningar minnisblað frá atvinnu- og þróunarstjóra, sem sótti hluta ráðstefnunnar. | | |
|
2. 2212012 - SeaTrade Global 2023 | Sýningin SeaTrade Global verður haldin í Ft.Lauderdale í Flórída 27. til 30. mars 2023. Cruise Iceland hefur tekið frá svæði óskað eftir skráningum til þátttöku. Hafnarstjórn felur atvinnu- og þróunarstjóra að senda svar til Íslandsstofu. | | |
|
3. 2209172 - Gjaldskrá Fjarðabyggðarhafna 2023 | Gjaldskrá Fjarðabyggðarhafna 2023 lögð fram til kynningar. Gjaldskráin hefur verið samþykkt í bæjarráði. | | |
|
4. 2012071 - Ósk Cargow um landtengingu á Mjóeyrarhöfn | Lagt fram minnisblað frá Cargow og farið yfir málin varðandi landtengingar á Mjóeyrarhöfn. Eflu verkfræðistofu hefur verið falið að taka saman minnisblað um kostnað við málið sem verður lagt fyrir hafnarstjórn að nýju. | | |
|
5. 2211087 - Umsókn um styrk til fjögurra menningarverkefna | Framlögð beiðni menningarstofu um fjárstyrk til fjögurra verkefna á sviðum menningar sem ráðist var í á árinu 2022. Hafnarstjórn samþykkir að veita umbeðinn styrk. | | |
|
6. 2211173 - Sérstakt strandveiðigjald til hafna 2022 | Tilkynning frá Fiskistofu um greiðslu strandveiðigjalds til hafna lögð fram til kynningar. | | |
|
7. 2211088 - Vinnustofa Hafið tekur ekki lengur við | Þann 3.nóvember stóð Umhverfisstofnun fyrir vinnustofu á Grand Hótel um móttöku og meðhöndlun úrgangs sem kemur upp með veiðarfærum. Ragnar Sigurðsson sótti vinnustofuna fyrir hönd sveitarfélagsins. Fyrirlestrar vinnustofunnar lagðir fram til kynningar. | | |
|
| |
8. 2202086 - Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2022 | Lögð fram til kynningar fundargerð 447. fundar Hafnasambands Íslands | | |
|