| |
1. 2210090 - Til umsagnar 9. mál frá nefndasviði Alþingis | Bæjarráð hefur tekið fyrir umsagnarbeiðni vegna þingsályktunar um endurskoðun á laga- og reglugerðaumhverfi sjókvíaeldis. Málið lagt fram til kynningar í hafnarstjórn. Hafnarstjórn tekur undir hugmyndir bæjarráðs að umsögn um málið. | | |
|
2. 2210114 - Beiðni um umsögn vegna umsóknar Laxa Fiskeldis ehf. um breytingar á eldisfyrirkomulagi í Reyðarfirði | Lögð fram umsagnarbeiðni Laxa Fiskeldis vegna breytinga á eldisfyrirkomulagi í Reyðarfirði. Hafnarstjórn felur atvinnu- og þróunarstjóra að vinna umsögn í samræmi við fyrri umsagnir um málið. | | Ragnar Sigurðsson vék af fundi undir fundarlið 2
| |
|
3. 2210158 - Sjóvarnir við Egilsbraut 26, Neskaupstað | Lögð fram beiðni Guðröðar Hákonarsonar, fyrir hönd Hildibrand slf., um fund með hafnarstjórn vegna sjóvarna við Beituskúrinn, Egilsbraut 26, Neskaupstað. Hafnarstjórn felur sviðstjóra framkvæmdasviðs að vinna kostnaðargreiningu á gerð sjóvarna neðan við Egilsbraut 22 og 26 og leggja fyrir næsta fund. | | Jón Björn Hákonarson vék af fundi undir fundarlið 3
| |
|
4. 2210157 - Umsókn um undanþágu frá hafnsöguskyldu - Samskip Hoffell | Erindi frá Samskip dags. 14. október 2022 þar sem óskað er eftir undanþágu frá hafnsöguskyldu að og frá Mjóeyrarhöfn fyrir Yevhen Hrushevinchuk, skipstjóra á MS Samskip Hoffell. Hafnastjórn samþykkir umbeðna undanþágu. | | |
|
5. 2210160 - Reglur um undanþágu frá hafnsöguskyldu í Fjarðabyggðarhöfnum | Endurskoðun á skilyrðum veitingar undanþágu frá hafnsögu í Fjarðabyggðarhöfnum. Hafnarstjórn felur verkefnastjóra hafna að yfirfara reglurnar og leggja fyrir að nýju. | | |
|