| |
1. 2003017 - Framkvæmdasvið verkefni 2020 | Lagt fram minnisblað varðandi stöðu framkvæmda ársins 2020 sem lagt er fram sem trúnaðarmál. Farið yfir stöðu framkvæmda og viðhalds miðað við fjárhagsáætlun ársins. | | | Gestir | Fjármálastjóri - 08:30 | Sviðsstjóri framkvæmdasviðs - 08:30 | |
|
2. 2006132 - Skólavegur 44 Fáskrúðsfirði | Framlagt bréf Bjarna G. Björgvinssonar lögmanns varðandi kauptilboð í Skólaveg 44 á Fáskrúðsfirði. Bæjarráð felur fjármálastjóra að vinna málið áfram og leggja fyrir bæjarráð að nýju. | | | Gestir | Fjármálastjóri - 09:40 | |
|
3. 2005096 - Skerðing framlaga úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga 2020 | Framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga hafa verið endurskoðuð í takt við nýja áætlun um tekjur sjóðsins. Tekjur sjóðsins vegna efnahagslegra áhrifa af Covid-19 faraldrinum hafa verið endurmetnar. Hin nýja áætlun um tekjur sjóðsins gerir ráð fyrir að tekjur hans lækki um tæpa 3,8 milljarða kr. Samkvæmt nýjum áætlunum munu áætluð framlög til Fjarðabyggðar lækka samtals um 110 m.kr. frá fyrri áætlun, sem skiptast annars vegar í lækkun fasteignagjaldajöfnunar um 46,4 m.kr. og hinsvegar í lækkun á útgjaldajöfnunarframlagi um 63,3 m.kr. Bæjarráð felur fjármálastjóra að fylgjast vel með þróun mála og upplýsa bæjarráð. Jafnramt vísar bæjarráð erindinu til hliðsjónar við gerð fjárhagsáætlunar 2021. | | | Gestir | Fjármálastjóri - 09:42 | |
|
4. 2006114 - Breytingar á stofnsamningi Héraðsskjalasafns Austfirðinga bs. á árinu 2020 | Framlagt bréf frá Héraðsskjalasafni um tillögur að breytingum á stofnsamnningi safnsins vegna sameiningar sveitarfélaga. Bæjarráð vísar erindi til umsagnar safnanefndar og verður það tekið fyrir að nýju í bæjarráði. | Bréf um breytingar á stofnsamningi Héraðsskjalasafns Austfirðinga bs - sent 23.6.2020.pdf | | |
|
5. 1805134 - Umferðarsamþykkt Fjarðabyggðar | Vísað frá bæjarstjórn til síðari umræðu bæjarráðs uppfærðri umferðarsamþykkt Fjarðabyggðar. Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar samþykkir umferðarsamþykkt samhljóða.
| umferdarsamþykkt-fjardabyggdar.pdf | Umferðarsamþykkt, bretingar 2020.pdf | | |
|
6. 2004009 - Ferðamálastefna Fjarðabyggðar 2020 - 2021 | Vísað frá menningar- og nýsköpunarnefnd til afgreiðslu bæjarráðs við fyrri umræðu ferðamálastefnu Fjarðabyggðar. Ferðmálastefna hefur verið lögð fram í öllum fastanefndum. Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar samþykkir að vísa ferðamálastefnu til síðari umræðu bæjarráðs. | | |
|
7. 1704067 - Umhverfisstefna Fjarðabyggðar | Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd vísar drögum að umhverfisstefnu Fjarðabyggðar 2018 - 2022 til umfjöllunar í bæjarráði, menningar- og nýsköpunarnefnd, félagsmálanefnd, fræðslunefnd, hafnarstjórn, íþrótta- og tómstundanefnd, landbúnaðarnefnd, ungmennaráði og safnanefnd. Bæjarráð frestar afgreiðslu málsins og óskar eftir að umhverfisstjóri mæti á fund bæjarráðs. | | |
|
8. 1908022 - Sundlaug Íþróttamiðstöðvar Reyðarfjarðar | Lagt fram minnisblað framkvæmdasviðs varðandi viðgerð á sundlauginni á Reyðarfirði. Málið rætt og vísað til eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, íþrótta- og tómstundanefndar og fræðslunefndar til umsagnar. Að því loknu verður málið tekið fyrir að nýju í bæjarráði. | | | Gestir | Fjármálastjóri - 09:15 | Sviðsstjóri framkvæmdasviðs - 09:15 | |
|
9. 2004112 - Uppbygging íþróttahúss á Reyðarfirði | Lögð fram fundargerð 4.fundar starfshóps og niðurstaða um uppbyggingu íþróttahúss á Reyðarfirði. Starfshópur um nýtt íþróttahús á Reyðarfirði vísar kostnaðaráætlun og samþykkt hópsins til umfjöllunar og afgreiðslu bæjarráðs. Málið tekið til umræðu og vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar, íþrótta- og tómstundanefndar og fræðslunefndar til umsagnar. Að því loknu verður málið tekið fyrir að nýju í bæjarráði. | | | Gestir | Fjármálastjóri - 09:33 | Sviðsstjóri framkvæmdasviðs - 09:33 | |
|
| |
10. 2006015F - Menningar- og nýsköpunarnefnd - 28 | Fundargerð menningar- og nýsköpunarnefndar frá 22. júní lögð fram til umfjöllunar og samþykktar bæjarráðs í umboði bæjarstjórnar. Bæjarráð samþykkir samhljóða fundargerð menningar- og nýsköpunarnefndar. | 10.1. 2004009 - Ferðamálastefna Fjarðabyggðar 2020 - 2021 | 10.2. 2004044 - Starfshópur um tjaldsvæði | 10.3. 2005044 - Markaðsátak og sýnileiki 2020 | 10.4. 2006101 - Staða landbúnaðar í Fjarðabyggð | 10.5. 2006097 - Menningar- og listahátíð Fjarðabyggðar 2020 | 10.6. 2006102 - Atvinnuþing í Fjarðabyggð | | |
|