Til bakaPrenta
Bæjarráð - 775

Haldinn að Búðareyri 2, fundarherbergi 1,
05.12.2022 og hófst hann kl. 08:30
Fundinn sátu: Stefán Þór Eysteinsson formaður, Þuríður Lillý Sigurðardóttir varaformaður, Ragnar Sigurðsson aðalmaður, Jón Björn Hákonarson bæjarstjóri, Gunnar Jónsson embættismaður, Snorri Styrkársson embættismaður.
Fundargerð ritaði: Gunnar Jónsson, bæjarritari


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2209121 - Gjaldskrá slökkviliðs 2023
Framlögð uppfærð tillaga að gjaldskrá slökkviliðs 2023. Samkvæmt ákvörðun bæjarráðs hækkar gjaldskráin 5,6%. Bæjarráð samþykkir tillögu að gjaldskrá slökkviliðs 2023 og tekur ný gjaldskrá gildi 1.1.2023.
2. 2209112 - Gjaldskrá vatnsveitu Fjarðabyggðar 2023
Framlögð uppfærð tillaga að gjaldskrá vatnsveitu 2023. Samkvæmt ákvörðun bæjarráðs hækkar gjaldskráin 5,6%. Bæjarráð samþykkir tillögu að gjaldskrá vatnsveitu 2023 og tekur ný gjaldskrá gildi 1.1.2023.
3. 2209171 - Gjaldskrá hitaveitu Fjarðabyggðar 2023
Framlögð uppfærð tillaga að gjaldskrá hitaveitu 2023. Samkvæmt ákvörðun bæjarráðs hækkar gjaldskráin 5,6%. Bæjarráð samþykkir tillögu að gjaldskrá hitaveitu 2023 og tekur ný gjaldskrá gildi 1.2.2023.
4. 2210052 - Gjaldskrá fjarvarmaveitu 2023
Framlögð uppfærð tillaga að gjaldskrá fjarvarmaveitu 2023. Samkvæmt ákvörðun bæjarráðs hækkar gjaldskráin 5,6%. Bæjarráð samþykkir tillögu að gjaldskrá fjarvarmaveitu 2023 og tekur ný gjaldskrá gildi 1.1.2023.
5. 2210061 - Gjaldskrá fráveitu 2023
Framlögð uppfærð tillaga að gjaldskrá fráveitu 2023. Samkvæmt ákvörðun bæjarráðs hækkar gjaldskráin 5,6% en álagningarstuðull fráveitugjalds sem innheimt er með fasteignaskatti er 0,275%. Bæjarráð samþykkir tillögu að gjaldskrá fráveitu 2023 og tekur ný gjaldskrá gildi 1.1.2023.
6. 2209158 - Gjaldskrá skipulags- og byggingarmála 2023
Framlögð uppfærð tillaga að gjaldskrá skipulags- og byggingarmála 2023. Samkvæmt ákvörðun bæjarráðs hækkar gjaldskráin 5,6%.
Bæjarráð samþykkir tillögu að gjaldskrá fráveitu 2023 og tekur ný gjaldskrá gildi 1.1.2023.
7. 2209170 - Gjaldskrá hunda og kattahald 2023
Framlögð uppfærð tillaga að gjaldskrá hunda- og kattahalds 2023. Samkvæmt ákvörðun bæjarráðs hækkar gjaldskráin 5,6%.
Bæjarráð samþykkir tillögu að gjaldskrá hunda- og kattahalds 2023 og tekur ný gjaldskrá gildi 1.1.2023.
8. 2210047 - Gjaldskrá félagsheimila
Framlögð uppfærð tillaga að gjaldskrá félagsheimila 2023. Samkvæmt ákvörðun bæjarráðs hækkar gjaldskráin 5,6%. Bæjarráð samþykkir tillögu að gjaldskrá félagsheimila 2023 og tekur ný gjaldskrá gildi 1.1.2023.
9. 2209161 - Gjaldskrá leikskóla 2023
Framlögð uppfærð tillaga að gjaldskrá leikskóla 2023. Samkvæmt ákvörðun bæjarráðs hækkar gjaldskráin 5,6%. Bæjarráð samþykkir tillögu að gjaldskrá leikskóla 2023 og tekur ný gjaldskrá gildi 1.1.2023.
10. 2210051 - Gjaldskrá frístundaheimila 2023
Framlögð uppfærð tillaga að gjaldskrá frístundaheimila 2023. Samkvæmt ákvörðun bæjarráðs hækkar gjaldskráin 5,6%.
Bæjarráð samþykkir tillögu að gjaldskrá frístundaheimila 2023 og tekur ný gjaldskrá gildi 1.1.2023.
11. 2209166 - Gjaldskrá húsnæðis grunnskóla 2023
Framlögð uppfærð tillaga gjaldskrá fyrir húsnæði grunnskóla. Samkvæmt ákvörðun bæjarráðs hækkar gjaldskráin 5,6%.
Bæjarráð samþykkir tillögu að gjaldskrá fyrir húsnæði grunnskóla og tekur ný gjaldskrá gildi 1.1.2023.
12. 2210054 - Gjaldskrá þjónustuíbúða í Breiðablik 2023
Framlögð uppfærð tillaga að gjaldskrá þjúnstuíbúða í Breiðablik 2023. Samkvæmt ákvörðun bæjarráðs hækkar gjaldskrá um 5,6%.
Bæjarráð samþykkir tillögu að gjaldskrá þjónustuíbúða í Breiðablik 2023 og tekur ný gjaldskrá gildi 1.1.2023.
13. 2209116 - Gjaldskrá stuðningsþjónustu 2023
Framlögð uppfærð tillaga að gjaldskrá stuðningsþjónustu 2023 en gjaldskrá er breytt samkvæmt samþykkt félagsmálanefndar. Samkvæmt ákvörðun bæjarráðs hækkar gjaldskráin 5,6%.
Bæjarráð samþykkir tillögu að gjaldskrá stuðningsþjónustu 2023 og tekur ný gjaldskrá gildi 1.1.2023.
14. 2209172 - Gjaldskrá Fjarðabyggðarhafna 2023
Framlögð uppfærð tillaga að gjaldskrá Fjarðabyggðarhafna 2023 en hafnarstjórn hefur uppfært efni hennar. Samkvæmt ákvörðun bæjarráðs hækkar gjaldskráin 5,6%.
Bæjarráð samþykkir tillögu að gjaldskrá Fjarðabyggðahafna 2023 og tekur ný gjaldskrá gildi 1.1.2023.
15. 2211111 - Gjaldskrá félagsmiðstöðva 2023
Vísað frá íþrótta- og tómstundanefnd til afgreiðslu bæjarráðs tillögu að nýrri gjaldskrá fyrir afnot af húsnæði félagsmiðstöðva í Fjarðabyggð.
Bæjarráð samþykkir gjaldskrá fyrir félagsmiðstöðvar og tekur hún gildi 1.1.2023.
16. 2211094 - Jólasjóður 2022
Lagt fram minnisblað sviðstjóra fjölskyldusviðs með tillögu að greiðslu styrks í jólasjóð Fjarðabyggðar vegna úthlutunar úr sjóðnum 2022.
Bæjarráð samþykktir að greiða til jólasjóðs 500.000 kr. á árinu 2022.
Jólasjóður 2022.pdf
17. 2208146 - Rekstrarform Hitaveitu Fjarðabyggðar
Lögð fram drög að bréfi um ósk til ráðherra um framsal á einkaleyfi Hitaveitu Fjarðabyggðar til einkahlutafélags sem væri rekið að fullu af sveitarfélaginu en lagasetningu þarf til að færa einkaleyfið.
Bæjarráð samþykkir tillögu að bréfi og sótt verði um framsal einkaleyfis til einkahlutafélags sem er að fullu í eigu Fjarðabyggðar.
18. 2201106 - Fundargerðir Samband Íslenskra sveitarfélaga 2022
Fundargerð 915. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga lögð fram til kynningar.
stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga - 915.pdf
19. 2209019 - Bréf innviðaráðuneytis
Framlagt til kynningar bréf innviðaráðuneytis frá 30. nóvember sl. vegna athugasemdar Ragnars Sigurðssonar um heimild Jóns Björns Hákonarsonar til að taka þátt í að ræða eða greiða atkvæði um efni ráðningarsamnings sem hann sé sjálfur aðili að.
Afstaða ráðuneytisins er að Jón Björn Hákonarson bæjarstjórnarfulltrúi hafi ekki verið vanhæfur til að taka þátt í meðferð og afgreiðslu máls sem laut að ráðningu og kjörum framkvæmdastjóra Fjarðabyggðar, jafnvel þótt sú ráðning hafi varðað hann persónulega og fjárhagslega hagsmuni hans. Telur ráðuneytið að ekki séu uppi vísbendingar um að ákvörðun bæjarstjórnar Fjarðabyggðar um ráðningu og ráðningarsamning framkvæmdastjóra sveitarfélagsins stangist á við lög eða samþykkt um stjórn Fjarðabyggðar og fundarsköp bæjarstjórnar nr. 252/2022, með síðari breytingum, og því ekki tilefni til að taka lagaleg álitaefni þess til frekari umfjöllunar á grundvelli 112. gr. sveitastjórnarlaga að öðru leyti en hér hefur verið gert. Er máli þessu því lokið af hálfu innviðaráðuneytisins.
Bréf Ragnar Sigurðsson.pdf
20. 2211101 - Rekstrarfyrirkomulag vegna skíðasvæðisins í Oddsskarði
Vísað frá íþrótta- og tómstundanefnd til umfjöllunar bæjarráðs tillögu um tilfærslu rekstrarþátta skíðasvæðis í Oddsskarði varðandi viðhald búnaðar og áhalda sem notaðir eru á skíðasvæðinu.
Vísað til bæjarstjóra til afgreiðslu.
Rekstrarfyrirkomulag skíðasvæðisins í Oddsskarði..pdf
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl.  

Til bakaPrenta