| |
1. 2211009 - Endurskoðun Menningarstefnu Fjarðabyggðar | Fjallað um afrakstur vinnu á menningarmótum sem haldin voru í nóvember og farið yfir framahald vinnu við endurskoðun menningarstefnunnar. Vinnu verður framhaldið við endurskoðun stefnunnar og hún tekin upp síðar. | | |
|
2. 2401038 - Menningarstyrkir 2024 | Farið yfir reglur um úthlutun menningarstyrkja og fyrirkomulag umsókna og afgreiðslu þeirra á árinu 2024. Stjórn samþykkir að auglýst sé eftir umsóknum um menningarstyrki Fjarðabyggðar fyrir 12. febrúar 2024.
| reglur-vegna-uthlutunar-menningarstyrkja-2018.pdf | | |
|
3. 2011203 - Stjórnkerfisnefnd 2020-2023 | Fjallað um breytingar á rekstri í menningarmálaflokki með tilkomu samþykktar bæjarstjórnar á breytingum á stjórnkerfi. Framlögð innkomin bréf sem tengjast breytingum. | | |
|
4. 2312152 - Fundargerðir Sjóminjasafns Austurlands | Framlögð til kynningar fundargerð stjórnar Sjóminjasafns Austurlands frá 21. desember sl. | | |
|
5. 2311075 - Skapandi sumarstörf 2023 | Framlögð til kynningar lokaskýrsla skapandi sumarstarfa 2023. Stjórnin fagnar árangursríku starfi. | Lokaskýrsla skapandi sumarstarfa 2023 (002).pdf | | |
|
6. 2309072 - Uppbyggingarsjóður 2023 - umsóknir og styrkveitingar | Farið yfir styrkveitingar sem fengust úr uppbyggingarsjóði Austurlands en veittar voru ein milljón til fjölbreyttra listasmiðja og listsýninga í Fjarðabyggð 2024, Innsævi og fl. auk einnar milljónar til upptaktsins. Ekki fékkst styrkur til þróunar Gallerís í Þórsmörk. | Uppbyggingarsjóður-Úthlutun_2024.pdf | | |
|
7. 2401039 - Verkefni menningarstofu 2024 | Forstöðumaður menningarstofu kynnti dagskrá menningarstofu næstu misseri. | | |
|