Til bakaPrenta
Fjallskilanefnd - 1

Haldinn í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði,
10.08.2022 og hófst hann kl. 14:00
Fundinn sátu: Þuríður Lillý Sigurðardóttir formaður, Arnór Ari Sigurðsson varaformaður, Marsibil Erlendsdóttir aðalmaður, Sunna Júlía Þórðardóttir aðalmaður, Steinn Björnsson aðalmaður, Anna Berg Samúelsdóttir embættismaður, Aron Leví Beck Rúnarsson embættismaður.
Fundargerð ritaði: Aron Leví Beck, Skipulags- og umhverfisfulltrúi


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2205302 - Erindisbréf fjallskilanefndar
Erindisbréf var kynnt fyrir fjallskilanefnd.
2022 Erindisbréf fjallskilanefndar.pdf
2. 2205172 - Nefndaskipan í Fjarðabyggð 2022 - 2026
Skipan fjallskilastjóra sbr. 4. tölulið 62. gr. samþykkta sveitarfélagsins. Bæjarstjórn kýs fjallskilastjóra eftir tilnefningu fjallskilanefndar, samanber ákvæði
fjallskilasamþykktar fyrir Múlasýslur.
Fjallskilanefnd tilnefnir Þuríði Lillý Sigurðardóttir sem fjallskilastjóra Fjarðabyggðar, lagt er til að Arnór Ari Sigurðsson verði varafjallskilastjóri og hafi umsjón með fjallskilum í Stöðvarfirði og Breiðdal.
6.1 fjallskilasamth_fy_mulasyslur.pdf
3. 2207099 - Úrgangsmál, dýrahræ og alm. úrgangur í dreifbýli
Fjallskilanefnd felur Skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera leiðarvísi varðandi úrgangsmál í dreifbýli (dýrahræ, rúlluplast o.s.f.) eftir umræður nefndarmanna á fundinum. Nefndin óskar eftir að drög að leiðarvísi verði lögð fyrir til samþykktar á næsta fundi.
4. 2207098 - Fjallskil og gangnaboð 2022
Fjallskilanefnd hefur sett upp gangnaboð Fjarðabyggðar fyrir haustið 2022.
5. 1808042 - Fjárréttir í Fjarðabyggð
Staða rétta í sveitafélaginu rædd. Marzibil og Arnóri var falið að sjá um endurbætur á fjárréttum á Reykjum í Mjóafirði, í Stöðvafirði og á Heydölum í Breiðdal.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16:00 

Til bakaPrenta