Til bakaPrenta
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 32

Haldinn í Molanum fundarherbergi 5,
15.08.2023 og hófst hann kl. 14:30
Fundinn sátu: Þuríður Lillý Sigurðardóttir formaður, Esther Ösp Gunnarsdóttir varaformaður, Birkir Snær Guðjónsson aðalmaður, Kristinn Þór Jónasson aðalmaður, Heimir Snær Gylfason aðalmaður, Aron Leví Beck Rúnarsson embættismaður.
Fundargerð ritaði: Aron Leví Beck, Skipulags- og umhverfisfulltrúi


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2308005 - Deiliskipulag breyting Miðbær Nesk v. fótboltavöllur
Ósk um breytingu á deiliskipulaginu Miðbær Nesk útaf fótboltavelli. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að farið verði í breytingar á deiliskipulagi Miðbær Neskaupstaðar.
Norðfjarðarvöllur - bryggja.pdf
Gildandi dsk Miðbær Nesk.pdf
2. 2308019 - Loðnuvinnslan hf. á Fáskrúðsfirði - Hafnargata 1 - Breyting á deiliskipulagi hafnarsvæðis 05 - Ósk um leyfisamþykki
Óskað er eftir leyfi/samþykki Fjarðabyggðar fyrir því að undir búa tillögu að breyttu deiliskipulagi fyrir hönd Loðnuvinnslunnar hf. á Fáskrúðsfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að farið verði í breytingu á deiliskipulagi Hafnarsvæðis 05, Fáskrúðsfirði.
Loðnuvinnslan hf. á Fáskrúðsfirði - Hafnargata 1 - Breyting á deiliskipulagi hafnarsvæðis 05 - Ósk um leyfi/samþykki.pdf
3. 2302173 - Hafnargata 36 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Tekið fyrir að nýju umsókn Loðnuvinnslunar um byggingarleyfi og byggingaráform vegna veggs sem fyrirhugað er að reisa á lóðinni Hafnargötu 36 á Fáskrúðsfirði ásamt minnisblaði Jóns Jónssonar lögmanns um stöðu sveitarfélagsins. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur byggingarfulltrúa að svara athugasemd sem barst vegna grenndarkynningar og leggja fyrir á næsta fundi.
4. 2305250 - Umsókn um stækkun á Leirubakka 4, Eskifirði
Umsókn um stækkun á Leirubakka 4, Eskifirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að farið verði í breytingu á deiliskipulagi Leiru 1, Eskifirði.
höfnin á esk.pdf
2738-021-DSK-001-V01_breyting á árfarvegi og stækkun lóðar-Í VINNSLU.pdf
5. 2308001 - Bréf frá Heilbrigðiseftirliti v. Hjallaleiru
Bréf frá Heilbrigðiseftirliti v. Hjallaleiru. Umhverfis- og skipulagsnefnd þakkar kynninguna og óskar jafnframt eftir því að nefndin verði upplýst um framgang mála. Mikilvægt er að vinna hratt og örugglega að málum er snúa að mengunarvörnum, umhverfi og ásýnd sveitarfélagsins.
Bréf til Fjarðabyggðar IV - 17.7.23 - PO.pdf
6. 2308004 - Vangaveltur vegna smáhýsalóða á Breiðdalsvík
Vangaveltur vegna smáhýsalóða á Breiðdalsvík. Umhverfis- og skipulagsnefnd tekur vel í erindið og óskar eftir frekari útfærslu á verkefninu. Svæðið fellur undir landnotkunarflokkinn "Miðbær" og er það opið fyrir blandaðri byggð og þar með ýmsir möguleikar fyrir hendi varðandi uppbyggingu.
Minnisblað v. smáhýsa á Breiðdalsvík.pdf
Screenshot 2023-07-17 115235.pdf
7. 2308007 - Umsón um leyfi fyrir uppsetningu skilta
Umsón um leyfi fyrir uppsetningu skilta. Umhverfis- og skipulagsnefnd lýst vel á verkefnið og hvetur bréfritara að sækja formlega um framkvæmdaleyfi í íbúagátt sveitarfélagssins. Nefndin hefur ekki á forræði sínu styrkveitingar og vísar beiðni til bæjarráðs.
Stöðfirskir bátar og skip - kynning.pdf
Umsókn um leyfi fyrir skiltum.pdf
8. 2308023 - Helgustaðanáma aðstöðuhús
Umsókn um að fá að setja aðstöðuhús við Helgustaðanámu. Umhverfis- og skipulagsnefnd heimilar að farið verði í breytingu á deiliskipulagi Helgustaðanámu.
HU1403_A02-Afstöðumynd _ A3 _200.pdf
gildandi deiliskipulag Helgustaðanáma.pdf
9. 2301094 - Aðalskipulag br. skógrækt
Samantekt athugasemda við lýsingu og vinnslustillögu. Umhverhverfis- og skipulagsnefnd þakkar framlagðar athugasemdir og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að vinna málið áfram.
A1636-002-U01 Samantekt athugasemda við lýsingu og vinnslustillögu.pdf
10. 2308021 - Umsókn um lóð Sæbakki 17
Umsókn um lóð fyrir íbúðarhús að Sæbakka 17, Neskaupstað. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að úthluta lóðinni og vísar til endanlegrar afgreiðslu bæjarráðs.
Sæbakki 17 740 LB.pdf
11. 2307094 - Ársskýrsla HAUST 2022
Ársskýrsla HAUST 2022. Umhverfis- og skipulagsnefnd þakkar kynninguna.
230718 Ársskýrsla 2022.pdf
12. 2308009 - Lystigarðsnefnd Kvenfélagsins Nönnu
Vísað frá bæjarráði til umhverfis- og skipulagsnefndar skipun fulltrúa í afmælisnefnd skipaða konum úr lystigarðsnefnd Nönnu auk fulltrúa/um frá Fjarðabyggð. Bæjarráð samþykkti að fulltrúar Fjarðabyggðar verði Helga Björk Einarsdóttir garðyrkjustjóri og vísar til umhverfis- og skipulagsnefndar skipun eins fulltrúa að auki í afmælisnefnd. Umhverfis- og skipulagsnefnd tilnefnir verkefnisstjóra umhverfismála.
afmælisnefnd Lystigarðsins 2024.pdf
13. 2010159 - Breytingar á deiliskipulagi Mjóeyrarhafnar
Deiliskipulag Mjóeyrarhafnar, viðbrögð eftir yfirferð Skipulagsstofnunar skv. 42. gr. skipulagslaga. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir viðbrögð eftir yfirferð Skipulagsstofnunar og vísar erindinu í bæjarstjórn.
Deiliskipulag Mjóeyrarhafnar, viðbrögð eftir yfirferð Skipulagsstofnunar skv. 42. gr. skipulagslaga.pdf
A1573-091-U01 Deiliskipulag Mjóeyrarhafnar, greinargerð.pdf
A1573-045-U04 Deiliskipulag Mjóeyrarhafnar, uppdráttur.pdf
14. 2308059 - Umsókn um lóð Búðarmelur 7 a-b-c
Umsókn um lóð Búðarmelur 7 a-b-c, fh Búðinga ehf. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að úthluta lóðinni og vísar til endanlegrar afgreiðslu bæjarráðs.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16:00 

Til bakaPrenta