Til bakaPrenta
Mannvirkja- og veitunefnd - 4

Haldinn í Hafnarhúsinu Eskifirði,
13.09.2022 og hófst hann kl. 16:00
Fundinn sátu: Stefán Þór Eysteinsson formaður, Pálína Margeirsdóttir aðalmaður, Kristinn Þór Jónasson aðalmaður, Bryngeir Ágúst Margeirsson aðalmaður, Marinó Stefánsson embættismaður, Svanur Freyr Árnason embættismaður.
Fundargerð ritaði: Marinó Stefánsson, sviðsstjóri framkvæmdasviðs
Elís Pétur Elísson afboðaði og ekki náðist að boða varamann


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2209100 - Umsókn til Orkusjóðs styrkur varnadælur grunnskóli Breiðdalsvík
Lögð fram til kynningar umsókn um styrk til Orkusjóðs vegna upphitnar á Breiðdalsvík sem var hafnað.
2. 2208082 - Starfs- og fjárhagsáætlun Mannvirkja- og veitunefndar 2023
Starfs- og fjárhagsáætlun Mannvirkja- og veitunefndar 2023. Mannvirkja og veitunefnd felur sviðsstjóra að vinna að fjárhagsáætlun í samræmi við umræður á fundinum og leggja fyrir á næsta fundi.
3. 2209106 - Minnisblað vegna tillögu að breytingu á reikningagerð Hitaveitu Fjarðabyggðar
Lögð fram minnisblöð vegna tillögu að breytingu á reikningagerð Hitaveitu Eskifjarðar. Mannvirkja og veitunefnd samþykkir þessa tillögu að breytingu á reikningagerð og felur forstöðumanni veitna að kynna breytingarnar.
Minnisblað vegna tillögu að breytingu á reikningagerð Hitaveitu Fjarðabyggðar.pdf
Samantekt um reikninga Hitaveitu Eskifjarðar.pdf
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:00 

Til bakaPrenta