Til bakaPrenta
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 11

Haldinn að Búðareyri 2, fundarherbergi 1,
07.11.2022 og hófst hann kl. 16:15
Fundinn sátu: Þuríður Lillý Sigurðardóttir formaður, Esther Ösp Gunnarsdóttir varaformaður, Birkir Snær Guðjónsson aðalmaður, Heimir Snær Gylfason aðalmaður, Jörgen Sveinn Þorvarðarson embættismaður, Aron Leví Beck Rúnarsson embættismaður.
Fundargerð ritaði: Aron Leví Beck, Skipulags- og umhverfisfulltrúi
Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins forfallaðist skyndilega og ekki náðist að manna varamann.


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2209049 - Hafnarbraut 38 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Hafnarbraut 38 - 40, umsögn við athugasemdum á auglýsingartíma skipulags.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykir með 3 atkvæðum gegn einu að fela byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar öllum tilskildum gögnum hefur verið skilað. Meirihluti Framsóknarflokksins og Fjarðarlistans telur athugasemndir við grendarkynningu ekki vera þess eðlis að hafna slíkri uppbyggingu í Neskaupsstað.

Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í Fjarðabyggð harma niðurstöðu nefndarinnar um úthlutunar byggingaleyfis á lóðunum hafnarbraut 38-42 í Neskaupstað í ljósi óánægju íbúa vegna framkvæmdar grendarkynningar. Þar sem ekki var viðhöfð nægilega vönduð vinnubrögð við grenndarkynningu og hún ekki samrýmst reglum skipulagsstofnunar um grendarkynningar samkvæmt athugasemdum hefðu fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í Fjarðabyggð viljað sjá betri grenndarkynningu vera lagða fyrir íbúa til að ná sátt um framkvæmdina. Einnig óskum við hér með eftir að Umhverfis og skipulagsnefnd sækist eftir sátt við íbúa um frekari framkvæmdir í Fjarðabyggð og vandi sig við grendarkynningar og frekari áform um breytingar á skipulagi og uppbyggingu innan sveitarfélagsins.
Hafnarbraut Umsögn við athugasemdum á auglýsingartíma skipulags.pdf
2. 2211017 - Strandgata 68 - 735 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Lögð fram byggingarleyfisumsókn Tvíhólma ehf. um leyfi til að breyta notkun á húsnæði við Strandgötu 68 735 Eskifjörður. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir umsóknina og felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi er tilskildum gögnum hefur verið skilað.
3. 2203145 - Hraun 1 - Umsókn um byggingarleyfi, 315 varaaflsbygging
Alcoa Fjarðarál sf. sækir um byggingarleyfi fyrir nýrri byggingu undir varaafl rofabúnaðar við Hraun 1. Umhverfis- og skipulagsnefnd frestar afgreiðslu málsins vegna hugsanlegra umhverfisárhrifa gaseiganagrandi rofabúnaðar sem verður í byggingunni. Skipulags- og umhverfisfulltrúa er falið að skoða málið frekar og leggja fyrir nefnd að nýju.
4. 2209206 - Hrauntún 7-9 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Lögð fram umsókn um byggingaráform og byggingarleyf Búðingar ehf. 23.09.2022 Þar sem sótt er um leyfi að byggja parhús við Hrauntún 7-9. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir umsóknina og felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi er tilskildum gögnum hefur verið skilað.
5. 2211010 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Hátún 11
Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi varðandi Hátún 11, Eskifirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning.
6. 2211023 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Sæberg 12
Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi varðandi Sæberg 12, Breiðdalsvík. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning.
7. 2211018 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Strandgata 14
Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi varðandi Strandgötu 14, Neskaupstað. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning.
8. 2210208 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Hlíðargata 18
Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi varðandi Hlíðargötu 18, Neskaupstað. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning.
9. 2210183 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Sólvellir 2
Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi varðandi Sólvelli 2, Breiðdalsvík. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning.
10. 2210186 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Austurvegur 1
Umsókn Fjarðabyggðar um endurnýjun á lóðaleigusamningi varðandi Austurveg 1, Reyðarfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning.
11. 2210187 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Sólvellir 6
Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi varðandi Sólvelli 6, Breiðdalsvík. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning.
12. 2210209 - Nýting á lóðinni Ægisgötu 6 - 730 til sýninga
Fram lagðar hugmyndir skipulags- og umhverfisfulltrúa og forstöðumanns Menningarstofu um nýtingu lóðarinnar Ægisgötu 6 á Reyðarfirði til útisýninga listaverka. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að vinna málið áfram í samvinnu við Menningarstofu.
Minnsblað vegna Ægisgötu 6 og sýningahalds.pdf
Minnisblað vegna Ægisgötu 6 - ALB.pdf
13. 2004108 - Nytjamarkaður, Fjb.
Nytjamarkaður í Fjarðabyggð. Umhverfis- og skipulagsnefnd tekur vel í hugmynd um nytjamarkað og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að vinna málið áfram í samræmi við umræðu á fundinum. Nefndin felur skipulags- og umhverfisfulltrúa ásamnt formanni umhverfis- og skipulagsnefndar að funda með þeim aðilum sem lýstu yfir áhuga á verkefninu.
14. 2210182 - Ormahreinsun 2022
Skipulags- og umhverfisfulltrúi kynnir nefndinni fyrir ormahreinsun hunda og katta í Fjarðabyggð árið 2022. Umhverfis- og skipulagsnefnd telur miður að ekki megi senda ormalyf heim til umráðamanna hunda og katta.
15. 2210058 - Boð um þátttöku í samráði Þjóðgarðar og önnur friðlýst svæði - lykilþættir
Framlagt fundarboð þar sem kynnt er skýrsla um stöðu og áskoranir þjóðgarða og annarra friðlýstra svæða 9. nóvember n.k.
Fundarboð.pdf
16. 2210106 - Umsókn um lóð Strandgata 28 Nesk
Umsókn um lóð Strandgata 28 Nesk. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur starfsmönnun sviðsins að setja málið í grenndarkynningu og vísar erindinu til bæjarráðs.
17. 2010159 - Breytingar á deiliskipulagi Mjóeyrarhafnar
Álit Skipulagsstofnunar, vegna 2. áfanga stækkunar Mjóeyrarhafnar. Málið hefur verði kynnt fyrir nefnd.
Mjóeyri - álit.pdf
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:15 

Til bakaPrenta