Til bakaPrenta
Mannvirkja- og veitunefnd - 20

Haldinn í Molanum fundarherbergi 5,
10.10.2023 og hófst hann kl. 16:30
Fundinn sátu: Stefán Þór Eysteinsson formaður, Elís Pétur Elísson varaformaður, Kristinn Þór Jónasson aðalmaður, Árni Þórhallur Helgason varamaður, Svanur Freyr Árnason embættismaður.
Fundargerð ritaði: Svanur Freyr Árnason, Sviðsstjóri framkvæmdasviðs


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2305071 - Starfs- og fjárhagsáætlun mannvirkja- og veitunefndar 2024
Lagt fram bréf fjármálastjóra um úthlutun bæjarráðs á fjárhagsramma nefndarinnar fyrir árið 2024, annars vegar rekstur málaflokka í A hluta og hins vegar rekstur sjóða í A hluta. Vísað til áframhaldandi vinnu fjárhagsáætlunargerðar.
2. 2309152 - Gjaldskrá fráveitu 2024
Gjaldskrá fráveitu fyrir árið 2024 lögð fram til umræðu. Mannvirkja- og veitunefnd felur sviðsstjóra að vinna gjaldskrá í samræmi við umræður og leggja fyrir á næsta fund.
3. 2309155 - Gjaldskrá hitaveitu 2024
Gjaldskrá hitaveitu fyrir árið 2024 lögð fram til umfjöllunar. Mannvirkja- og veitunefnd felur sviðsstjóra að vinna gjaldskrá í samræmi við umræður og leggja fyrir á næsta fund.
4. 2309167 - Gjaldskrá vatnsveitu 2024
Gjaldskrá vatnsveitu 2024 lögð fram til umfjöllunar. Mannvirkja- og veitunefnd felur sviðsstjóra að vinna gjaldskrá í samræmi við umræður og leggja fyrir á næsta fund.
5. 2309099 - Gjaldskrá fjarvarmaveita 2024
Gjaldskrá fjarvarmaveitu 2024 lögð fram til umfjöllunar ásamt minnisblaði fjármálastjóra. Mannvirkja- og veitunefnd samþykkir tillögu fjármálastjóra á breytingum á gjaldskrá.
6. 1811023 - Lúðvíkshúsið endurbyggt
Vísað frá stjórn menningarstofu og safnastofnunar til mannvirkja- og veitunefndar að framkvæmdum við endurbyggingu Lúðvíkshúss verði lokið á árinu 2024 og gert verði ráð fyrir fjármagni til verksins í fjárfestingaráætlun. Vísað í fjárhagsáætlunargerð.
7. 2309231 - Bréf til sveitarfélaga um innviði fyrir orkuskipti
Bréf til sveitarfélaga um innviði fyrir orkuskipti. Erindi tekið fyrir og sviðsstjóra falið að vinna málið áfram.
8. 2310038 - Egilsbraut 4 - Nytjamarkaður ósk um aukið rými
Framlagt erindi nytjamarkaðarins Steinsins í Neskaupstað. Framlagt og kynnt.
9. 2303230 - Framkvæmdasvið verkefni 2023
Vísað til bæjarráðs.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:30 

Til bakaPrenta