Til bakaPrenta
Hafnarstjórn - 294

Haldinn að Búðareyri 2, fundarherbergi 1,
02.05.2023 og hófst hann kl. 16:30
Fundinn sátu: Arnfríður Eide Hafþórsdóttir formaður, Stefán Þór Eysteinsson aðalmaður, Einar Hafþór Heiðarsson aðalmaður, Ragnar Sigurðsson aðalmaður, Heimir Snær Gylfason aðalmaður, Birgitta Rúnarsdóttir embættismaður, Jóna Árný Þórðardóttir .
Fundargerð ritaði: Birgitta Rúnarsdóttir, verkefnastjóri


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2208102 - Hafnarsvæðið á Fáskrúðsfirði
Lögð fram niðurstaða verðkönnunar í polla, forsteyptar einingar og holplötur fyrir framkvæmdina "Lenging Strandarbryggju". Hafnarstjórn þakkar kynninguna og felur hafnarstjóra að afla frekari upplýsinga og leggja fyrir hafnarstjórn að nýju.
2. 2012071 - Ósk Cargow um landtengingu á Mjóeyrarhöfn
Lagt fram til kynningar minnisblað Eflu verkfræðistofu um möguleika tengdum landtengingu fyrir skip Cargow á Mjóeyrarhöfn.
3. 2004076 - Mjóeyrarhöfn, fylling annar áfangi
Lagt fram til kynningar umsóknarbréf til Umhverfisstofnunar með ósk um heimild til vörpunar efnis í hafið.
4. 2304128 - Sjávarútvegsskólinn á Austurlandi 2023
Lagt fram bréf Sjávarútvegsskóla unga fólksins er varðar samstarf og kostnaðarþátttöku sumarið 2023. Hafnarstjórn samþykkir að veita sambærilegan styrk og undanfarin ár.
5. 2303363 - Sjávarútvegsráðstefnan 2023
Sjávarútvegsráðstefnan 2023 verður haldin í Hörpu 2.-3.nóvember næstkomandi.
6. 2304050 - SeaTrade Europe 2023
SeaTrade Europe sýningin verður haldin í Hamborg dagana 6.-8.september næstkomandi. Íslandsstofa hefur óskað eftir skráningum á sýninguna. Hafnarstjórn felur verkefnastjóra hafna að svara bréfinu.
7. 2304307 - Heimsókn hafnarstjórnar á hafnir
Hafnarstjórn ásamt hafnarstjóra og verkefnastjóra hafna stefnir á að heimsækja starfsstöðvar Fjarðabyggðarhafna nú í maí og júní.
Fundargerðir til kynningar
8. 2301196 - Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2023
Lagðar fram til kynningar fundargerðir 451. og 452. fundar Hafnasambands Íslands
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:00 

Til bakaPrenta