Til bakaPrenta
Bæjarráð - 777

Haldinn að Búðareyri 2, fundarherbergi 1,
19.12.2022 og hófst hann kl. 08:30
Fundinn sátu: Stefán Þór Eysteinsson formaður, Þuríður Lillý Sigurðardóttir varaformaður, Ragnar Sigurðsson aðalmaður, Jón Björn Hákonarson bæjarstjóri, Gunnar Jónsson embættismaður, Þórður Vilberg Guðmundsson embættismaður, Snorri Styrkársson embættismaður.
Fundargerð ritaði: Gunnar Jónsson, bæjarritari


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2212082 - Úthlutun byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2022-2023
Framlagt erindi matvælaráðuneytisins um úthlutun byggðkvóta til Fjarðabyggðar fyrir fiskveiðiárið 2022-2023 ásamt leiðbeiningum um sérreglur byggðakvóta.
Bæjarráð samþykkir að almennar reglur við úthlutun byggðakvóta gildi fyrir fiskveiðiárið 2022 til 2023 og felur atvinnu- og þróunarstjóra að upplýsa ráðuneytið.
Úthlutun byggðakvóta 2022-2023.pdf
2. 2209032 - Samningur um sameiginlegt umdæmisráð barnaverndar á landsvísu
Framlögð til staðfestingar uppfærð drög að samnningi og reglum fyrir umdæmisráð Landsbyggða vegna barnaverndarþjónustu.
Bæjarráð samþykkir uppfærðan samning og felur bæjarstjóra undirritun hans.
3. 2212065 - Valdaframsal barnaverndarþjónustu
Lögð fram drög að valdframsali til tilgreindra starfsmanna barnaverndarþjónustu til fullnaðarafgreiðslu mála í samræmi við breytingar á barnaverndarlögum 80/2002 ásamt minnisblaði sviðsstjóra fjölskyldusviðs og erindi frá mennta- og barnamálaráðuneyti.
Bæjarráð samþykkir tillögurnar fyrir sitt leyti og felur bæjarstjóra að vinna að uppfærslu samþykkta sveitarfélagsins og erindisbréfa nefnda vegna breytinganna. Vísað til fyrri umræðu bæjarstjórnar en stefnt er að aukafundi í bæjarstjórn 28. desember nk.
Samþykkt um fullnaðarafgreiðslu mála hjá Barnaverndarþjónustu.pdf
Bréf vegna barnavendarþjónustu og umdæmisráða 13. des. 2022.pdf
4. 2212099 - Ársreikningur Fjarðabyggðar árið 2022 - endurskoðunaráætlun
Framlögð kynning vegna endurskoðunar ársreiknings 2022 sem send er bæjarráði í samræmi við lögum um endurskoðendur og endurskoðun nr. 94/2019, sem tóku gildi 1. janúar 2020. Samkvæmt ákvæðum þeirra laga ber endurskoðendum m.a. að upplýsa endurskoðunarnefndir um áhættumat og nálgun við endurskoðun ársins. Þar sem endurskoðunarnefndir eru ekki skipaðar gegnir bæjarstjórn því hlutverki.
5. 2211069 - Heilsukort Fjarðabyggðar
Vísað frá íþrótta- og tómstundanefnd til afgreiðslur bæjarráðs tillögu um heilsu og fjölskyldukort Fjarðabyggðar.
Bæjarráð vísar tillögunni til deildarstjóra íþróttamála að nýju þar sem áhrif breytinga verði metnar fyrir notendur sem og kostnaðaráhrif þeirra. Þá verði tillaga að gjaldskrám útfærðar sem innifeli fjölskyldu- og heilsukortið og tekið upp með fjárhagsáætlunargerð 2024.
Heilsukort Fjarðabyggðar - minnisblað.pdf
6. 2107110 - Auglýsingasamningur 2021-2023
Vísað frá íþrótta- og tómstundanefnd til umfjöllunar bæjarráðs auglýsingastyrk til Knattspyrnufélags Fjarðabyggðar.
Bæjarráð frestar afgreiðslu og felur bæjarstjóra að ræða við forsvarsmenn félagsins.
Fundargerðir til staðfestingar
7. 2212011F - Fræðslunefnd - 119
Fundargerð 119. fundar fræðslunefndar frá 14. desember 2022 lögð fram til afgreiðslu
7.1. 1808078 - Stefnumörkun í fræðslu- og frístundamálum í Fjarðabyggð
7.2. 2211066 - Rekstrarkostnaður grunnskóla sveitarfélaga árið 2021
7.3. 2210162 - Starfsáætlanir og skólanámskrár 2022-2023
7.4. 2212085 - Fundaáætlun fræðslunefndar vorið 2023
8. 2212009F - Félagsmálanefnd - 160
Fundargerð 160. fundar félagsmálanefndar frá 13. desember 2022 lögð fram til afgreiðslu.
8.1. 2212075 - Kynning á verkefninu Hinsegin stuðningur í skólaumhverfinu
8.2. 2212076 - Rannsóknarverkefni Sprettur
9. 2212003F - Íþrótta- og tómstundanefnd - 110
Fundargerð 110. fundar íþrótta- og tómstundanefndar frá 14. desember 2022 lögð fram til afgreiðslu
9.1. 1808078 - Stefnumörkun í fræðslu- og frístundamálum í Fjarðabyggð
9.2. 2212075 - Kynning á verkefninu Hinsegin stuðningur í skólaumhverfinu
9.3. 2107109 - Vallarvinnusamningur við KFF 2021 - 2023
9.4. 2107110 - Auglýsingasamningur 2021-2023
9.5. 2211069 - Heilsukort Fjarðabyggðar
9.6. 2212084 - Umsókn tónlistarskóla Fjarðabyggðar að frístundastyrk
9.7. 2211140 - Íþróttamaður Fjarðabyggðar 2022
Fundargerðir til kynningar
10. 2202112 - Barnaverndarnefnd 2022
Framlögð til afgreiðslu fundargerð barnaverndarnefndar frá 13. desember sl.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:50 

Til bakaPrenta