Til bakaPrenta
Bæjarráð - 845

Haldinn í Molanum fundarherbergi 5,
29.04.2024 og hófst hann kl. 08:30
Fundinn sátu: Ragnar Sigurðsson formaður, Þuríður Lillý Sigurðardóttir varamaður, Stefán Þór Eysteinsson aðalmaður, Jóna Árný Þórðardóttir bæjarstjóri, Gunnar Jónsson embættismaður, Þórður Vilberg Guðmundsson embættismaður.
Fundargerð ritaði: Gunnar Jónsson, bæjarritari


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2404195 - Tilkynning og kvörtun vegna fyrirhugaðra skipulagsbreytinga á skólastarfi
Framlagt bréf mennta- og barnamálaráðuneytis vegna skipulagsbreyting á fræðslumálum í Fjarðabyggð.
Fjarðabyggð hefur borist niðurstaða mennta- og barnamálaráðuneytisins vegna þeirra athugasemda sem Kennarasamband Íslands gerði við fyrirhugaðar breytingar á fræðslumálum í Fjarðabyggð. Í niðurstöðu álits ráðuneytisins kemur fram að breytingar í fræðslumálum í leik-, grunn- og tónlistarskólum Fjarðabyggð stangist ekki á við gildandi lög. Athugasemdir ráðuneytisins snúa að formlegu samráðsferli, að ekki hafi verið haft nægt samráð við skólaráð grunnskóla eða foreldraráð leikskóla. Í ljósi þessarar athugasemdar mun Fjarðabyggð hefja samráðs- og kynningarferli.
Svar við erindi KÍ.pdf
Bréf til Fjarðabyggðar.pdf
Greinagerð um breytingar í fræðslumálum Fjarðabyggðar.pdf
2. 2404213 - Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2025
Fjármálastjóri kynnti fyrirhugaða vinnu við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2025 auk þriggja ára áætlunar.
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi tillögur og vísar erindinu til nefnda svo hægt sé að hefja undirbúningsvinnu fyrir fjárhagsáætlanagerð ársins 2025.
Skipulag vinnu við fjárhagsáætlun ársins 2025.pdf
Dagsetningar í fjárhagsáætlunarferli vegna áætlunar ársins 2025.pdf
Reglur um fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar.pdf
Þjóðhagsspá í apríl 2024.pdf
 
Gestir
Fjármálastjóri - 00:00
3. 2308085 - Fiskeldissjóður - umsóknir 2024
Framlögð niðurstaða Fiskeldissjóðs um úthlutun framlaga til verkefna sem Fjarðabyggð sótti um á árinu 2024.
Stjórn fiskeldisjóðs hefur úthlutað 437,2 milljónum kr til sextán verkefna í sjö sveitarfélögum. Af því var úthlutað til Fjarðabyggðar 151.840.000 kr. til fjögurra verkefna.
Fráveita á Breiðdalsvík, seinni hluti, hreinsivirki, samtals úthlutað 26.494.000 kr.
Kaup á slökkvibifreið, Fjarðabyggð, samtals úthlutað 44.452.000 kr.
Leikskólinn Dalborg, Eskifirði, innanhúsfrágangur, samtals úthlutað 40.447.000 kr.
Lenging Strandabryggju, Fáskrúðsfirði samtals úthlutað 40.447.000 kr.

Fjarðabyggð fagnar því að fá úthlutað fjármunum úr sjóðnum til þessara verðugu verkefna. Þrátt fyrir það vill sveitarfélagið árétta fyrri bókanir þess efnis að útdeiling tekna af gjaldtöku í fiskeldi í sjó renni til sveitarfélaga þar sem nýting auðlindarinnar og starfsemi fyrirtækja í fiskeldi fari fram og þörfin til uppbyggingar þjónustu sé mest. Við setningu laga nr. 89/2019 um töku gjalds vegna fiskeldis í sjó og fiskeldissjóð var lögð áhersla á að hlutverk sjóðsins væri að styrkja uppbyggingu innviða þar sem fiskeldi í sjókvíum er stundað og þar með samfélög og stoðir atvinnulífs á þeim svæðum. Ekkert sveitarfélag hefur að geyma jafnmikið sjókvíaeldi og Fjarðabyggð, hvort sem litið er til burðarþolsmats eða áhættumats.
Skorað er á matvælaráðherra að endurskoða fyrirkomulag sjóðsins með það fyrir augum að leggja Fiskeldissjóð niður. Tekjur vegna gjaldtöku fiskeldis í sjó og ætlað er til innviðauppbyggingar í sveitarfélögum þar sem sjókvíaeldi er stundað ætti að renna beint til sveitarfélaga án aðkomu Fiskeldissjóðs miðað við lífmassa, burðarþol- eða áhættumat fjarða.
Vísað til hafnarstjórnar og skipulags- og framkvæmdanefndar.
Nei_bréf_2024_-_Fjarðabyggð.pdf
Já_bréf_2024_-_Fjarðabyggð.pdf
 
Gestir
Fjármálastjóri - 00:00
4. 2403289 - Kennslutímamagn grunnskóla Fjarðabyggðar 2024-2025
Vísað frá fjölskyldunefnd til afgreiðslu bæjarráðs breytingum á kennslutímaúthlutun grunnskóla Fjarðabyggðar.
Bæjarráð samþykkir með tveimur atkvæðum breytingar á kennslutímaúthlutun grunnskóla Fjarðabyggðar. Breytingar fela í sér nýjan úthlutunarflokk sem felur í sér sértæka úthlutun (ílags úthlutun) til nemenda sem þarfnast viðbótarstuðnings. Með breytingunni verður kennslutímaúthlutun til handa nemendum með auknar stuðningsþarfir gagnsærri, bæði fyrir skólana og foreldra nemendanna.
Stefán Þór Eysteinsson situr hjá við afgreiðslu liðar.
Breytingar á úthlutun kennslutímamagns grunnskóla.pdf
Ráðstöfun fjármuna í grunnskólum_skýrsla_okt.pdf
 
Gestir
Fjármálastjóri - 00:00
5. 2303428 - Vallavinnusamningur 2023-2025
Vísað frá fjölskyldnefnd til afgreiðslu bæjarráðs samningi við Knattspyrnyfélag Austfjarða um rekstur Eskjuvallar á Eskifirði.
Bæjarráð samþykkir framlagðan vallavinnusamning við Knattspyrnufélag Austfjarða vegna reksturs Eskjuvallar og felur bæjarstjóra undirritun hans. Samningurinn er í samræmi við samning um rekstur vallarins undanfarin ár.
Minnisblað - samningur um rekstur Eskjuvallar 2024 undirritað.pdf
6. 2401122 - Forsetakosningar 1. júní 2024
Lögð fram kynning til sveitarfélaga vegna forsetakosninga sem fram fara þann 1. júní 2024.
7. 2404011 - Reglur Fjarðabyggðar um þjónustuíbúðir fyrir eldra fólk
Vísað frá fjölskyldunefnd til afgreiðslu bæjarráðs tillögum að breyttum reglum Fjarðabyggðar um þjónustuíbúðir fyrir eldra fólk.
Bæjarráð samþykkir framlagðar tillögur að breyttum reglum um þjónustuíbúðir og vísar þeim til staðfestingar bæjarstjórnar.
Minnisblað vegna breytinga á reglum um þjónustuíbúðir, seinni (2024).pdf
8. 2404096 - Breyting á samþykkt um fiðurfé
Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til afgreiðslu bæjarráð drögum að endurskoðuðum reglum um fiðurfé.
Bæjarráð vísar máli að nýju til skipulags- og framkvæmdanefndar til áframhaldandi vinnu.
9. 2402159 - Drög að breytingum á reglum um stöðuleyfi lausafjármuna
Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til afgreiðslu bæjarráðs endurskoðuðum reglum um stöðuleyfi lausafjármuna.
Bæjarráð vísar máli að nýju til skipulags- og framkvæmdanefndar til áframhaldandi vinnu.
10. 2404174 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Skólavegur 56
Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til afgreiðslu bæjarráðs stækkun lóðar að Skólavegi 56 á Fáskrúðsfirði sem gerð er samhliða endurnýjun lóðarsamnings.
Bæjarráð samþykkir stækkun lóðarinnar.
750 Skólavegur 56 LB.pdf
11. 2205172 - Nefndaskipan í Fjarðabyggð 2022 - 2026
Skipun öldungaráðs, þrír aðalfulltrúar og jafn margir til vara.
Tilnefnd eru sem aðalmenn Ólafur Helgi Guðmundsson formaður, Árni Þórhallur Helgason varaformaður og Arndís Bára Pétursdóttir. Varamenn Ragnar Sigurðsson, Pálína Margeirsdóttir og Einar Már Sigurðarson.
Vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.
12. 2404090 - Landshlutafundur
Framlagt til kynningar erindi frá jafnréttisstofu um landshlutafund þann 8. maí á Egilsstöðum.
13. 2404202 - Formleg boðun aðalfundar SSA fimmtudaginn 23. maí
Framlagt boð á aðalfund Sambands sveitarfélaga á Austurlandi sem haldinn verður 23. maí á Breiðdalsvík.
Bæjarfulltrúar fara með umboð Fjarðabyggðar á aðalfundinum.
Aðalfundur SSA.pdf
14. 2403087 - Fundargerðir Samtaka orkusveitarfélaga 2024
Framlögð til kynningar fundargerð stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga nr. 70.
Fundargerð Samtaka orkusveitarfélaga - nr 70 undirrituð.pdf
15. 2403087 - Fundargerðir Samtaka orkusveitarfélaga 2024
Framlögð til kynningar fundargerð stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga nr. 71
Fundargerð Samtaka orkusveitarfélaga - nr 71 undirrituð.pdf
16. 2402161 - Æðavarp í landi Fjarðabyggðar
Bæjarráð samþykkti á fundi sínum 15. maí 2023 að landsvæðið fyrir æðavarp í Kollaleirulandi verði ekki boðið út heldur verði landsvæðið sem almennt land í eigu Fjarðabyggðar án heimilda til nota af neinu tagi og sé opið almenningi.
Vísað til skipulags- og framkvæmdanefndar að áframhaldandi vinnslu.
17. 2404215 - Aðalfundarboð - Leigufélagið Bríet ehf.
Framlagt aðalfundarboð Leigufélagsins Bríetar ehf. sem haldinn verður verður 8. maí. nk.
Bæjarráð samþykkir að Jóna Árný Þórðardóttir bæjarstjóri fari með umboð Fjarðabyggðar á aðalfundinum.
18. 2312045 - Frumvarp til laga um lagareldi
Framlagt 930. mál frá atvinnuveganefnd Alþingis um lagareldi þar sem óskað er umsagna um frumvarp um lagareldi.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að skila umsögn um málið.
Tölvupóstur Alþingis um 930 mál - lagareldi.pdf
19. 2308105 - Umsóknir í Framkvæmdasjóð Ferðamannastaða 2024
Framlögð til kynningar niðurstaða í úthlutun úr framkvæmdasjóði ferðamannastaða en Fjarðabyggð fékk úthlutað í verkefnin Bleiksársfoss, hönnun kr. 2.460.080 og Streitishvarf, göngustígar kr. 25.000.000.
Vísað til skipulags- og framkvæmdanefndar.
Stjórnarráðið _ Ísland, sækjum það heim! 538,7 milljónir króna til uppbyggingar ferðamannastaða.pdf
Fundargerðir til staðfestingar
20. 2404023F - Skipulags- og framkvæmdanefnd - 8
Framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 24.apríl.
20.1. 2402161 - Æðavarp á Reyðarfirði
20.2. 2209189 - Ný staðsetning gámasvæða
20.3. 2207125 - Breiðablik þjónustuíbúðir aldraðra - ástand húsnæðis
20.4. 2404158 - Tilkynning um úrskurð v/ Hafnargötu 36
20.5. 2402235 - Leirubakki 9 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
20.6. 2404178 - Deiliskipulag breyting Leira 1
20.7. 2404174 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Skólavegur 56
20.8. 2404156 - Egilsbraut 22 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
20.9. 1808042 - Fjárréttir í Fjarðabyggð
20.10. 2404135 - Mógerði 1 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
21. 2404021F - Hafnarstjórn - 310
Framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu fundargerð hafnarstjórnar frá 22. apríl.
21.1. 2312117 - Rekstur Fjarðabyggðarhafna
21.2. 2305073 - Starfs- og fjárhagsáætlun hafnarstjórnar 2024
21.3. 2003091 - Eskifjarðarhöfn - stækkun
21.4. 2404163 - Sævarendi 2, Stöðvarfirði
21.5. 2206100 - Öryggismál hafna
21.6. 2403216 - Styrkir til Orkuskipta
21.7. 2404121 - Aðstöðuhús við Stöðvarfjarðarhöfn
21.8. 2404167 - Löndun meltu í Fjarðabyggðarhöfnum
21.9. 2307125 - Leyfi fyrir viðbótar hafnarkrana við Mjóeyrarhöfn - Eimskip
21.10. 2404168 - Ósk um flotbryggjur við Bæjarbryggjuna á Norðfirði
21.11. 2404155 - Ársreikningur Hafnasambands Íslands 2023
22. 2404020F - Stjórn menningarstofu - 4
Framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu fundargerð stjórnar menningarstofu frá 22. apríl.
22.1. 2305067 - Starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar menningarstofu- og safnastofnunar 2024
22.2. 2402237 - Starfsemi og þjónusta safna Fjarðabyggðar sumarið 2024
22.3. 2404154 - Framlag til reksturs 2024
22.4. 2404171 - Sómastaðir, samningur um umsjón húss.
23. 2404018F - Fjölskyldunefnd - 4
Framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu fundargerð fjölskyldunefndar frá 22. apríl.
23.1. 2404149 - Fjárhagsáætlunar vinna 2025
23.2. 2403289 - Kennslutímamagn grunnskóla Fjarðabyggðar 2024-2025
23.3. 2404169 - Mönnun leikskóla 2024
23.4. 2403280 - Vorráðstefnu Ráðgjafar- og greiningarstöðvar
23.5. 2303428 - Vallavinnusamningur 2023-2025
23.6. 2404150 - Aðalfundur Landskerfis bókasafna 2024
23.7. 2403020F - Ungmennaráð - 13
23.8. 2403007F - Ungmennaráð - 12
24. 2403007F - Ungmennaráð - 12
Framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu fundargerð ungmennaráðs frá 13. mars.
24.1. 2403088 - Erindi til ungmennaráðs vegna fræðslu og forvarna
25. 2403020F - Ungmennaráð - 13
Framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu fundargerð ungmennaráðs frá 3. apríl.
25.1. 2403228 - Umræðupunktar til ungmennaráðs frá skólaþingi Grunnskóla Reyðarfjarðar
26. 2404026F - Hafnarstjórn - 311
Fundargerð hafnarstjórnar frá 26. apríl tekin til umfjöllunar og afgreiðslu.
26.1. 2404205 - Þjónustusamningur um Vött
26.2. 2404206 - Bakvaktafyrirkomulag Fjarðabyggðarhafna
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 11:00 

Til bakaPrenta