Til bakaPrenta
Bæjarráð - 783

Haldinn í Molanum fundarherbergi 3,
06.02.2023 og hófst hann kl. 08:30
Fundinn sátu: Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir varamaður, Þuríður Lillý Sigurðardóttir varaformaður, Kristinn Þór Jónasson varamaður, Jón Björn Hákonarson bæjarstjóri, Þórður Vilberg Guðmundsson embættismaður, Snorri Styrkársson embættismaður.
Fundargerð ritaði: Þórður Vilberg Guðmundsson, Forstöðumaður stjórnsýslu- og upplýsingamála


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2204062 - Rekstur málaflokka 2022 - TRÚNAÐARMÁL
Lagt fram sem trúnaðarmál málaflokkayfirlit um rekstur, launakostnað og fjárfestinga á árinu 2022.
2. 2301163 - Erindi frá Austurbrú og SSA um þátttöku í nýju verkefni
Framlagður til kynningar stofnsamningur um nýsköpuanar verkefnið Eygló. Fjarðabyggð er aðili að samningnum ásamt öðrum sveitarfélögum á Austurlandi, Austurbrú, SSA, Landsvirkjun og Umhverfis-, orku-, og loftslagsráðuneytinu. Bæjarráð hafði áður samþykkt þátttöku í verkefninu.
3. 2203199 - Tjaldsvæði 2022
Framlagt minnisblað atvinnu- og þróunarstjóra vegna funda með rekstraraðila hluta tjaldsvæða Fjarðabyggðar, Landamerki og Fjallmann Solutions. Bæjarstjóra ásamt atvinnu-og þróunarstjóra falið að gera viðauka við gildandi samning þar sem gildistími verður færður fram til hausts 2023.
4. 2301210 - Boðun XXXVIII. landsþings sambandsins 31. mars 2023
Framlagt boð á landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga sem halda á 31. mars nk.
5. 2301033 - Breyting á leigusamningi um Hafnargötu 2
Lögð fram drög að breytingu á leigusamningi Fjarðabyggðar vegna Hafnargötu 2 á Reyðarfirði fyrir bæjarskrifstofur. Bæjarráð samþykkir framlagðar breytingar á leigusamningnum og felur bæjarstjóra að vinna áfram að honum og undirritun hans í framhaldi af því.
Fundargerðir til staðfestingar
6. 2301022F - Mannvirkja- og veitunefnd - 10
Fundargerð 10. fundar mannvirkja- og veitunefndar lögð fram til afgreiðslu
6.1. 2204123 - Framkvæmdasvið verkefni 2022
6.2. 2301205 - Grunnskólabörn Fáskrúðsfjarðar - Umferðaröryggi, gangbrautir og lýsing
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl.  

Til bakaPrenta