Til bakaPrenta
Mannvirkja- og veitunefnd - 10

Haldinn í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði,
01.02.2023 og hófst hann kl. 16:00
Fundinn sátu: Stefán Þór Eysteinsson formaður, Elís Pétur Elísson varaformaður, Pálína Margeirsdóttir aðalmaður, Kristinn Þór Jónasson aðalmaður, Bryngeir Ágúst Margeirsson aðalmaður, Marinó Stefánsson embættismaður, Svanur Freyr Árnason embættismaður.
Fundargerð ritaði: Marinó Stefánsson, sviðsstjóri framkvæmdasviðs


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2204123 - Framkvæmdasvið verkefni 2022
Farið yfir þær framkvæmdir sem verða helstar á árinu 2023 og hvað var gert á árinu 2022.
Nú hafa framkvæmdir staðið yfir í íþróttahúsinu á Eskifirði og það sem búið er að rífa lítur betur út en á horfðist miðað við það sem var opnað fyrst. Sérfræðingar EFLU koma um miðjan febrúar til að vinna úttekt á íþróttahúsinu og grunnskóla Eskifjarðar og munu taka sýni ef þeir telja þörf á. EFLA mun leggja fram úrbótaáætlun í framhaldi af þeirri vinnu.
Mannvirkja- og veitunefnd felur sviðsstjóra framkvæmdasviðs að vinna tillögu að gatnaframkvæmdum ársins og leggja fyrir nefndina á næsta fundi.
2. 2301205 - Grunnskólabörn Fáskrúðsfjarðar - Umferðaröryggi, gangbrautir og lýsing
Bæjarráð vísar erindi frá börnum í 3. og 4. bekk í Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar varðandi umferðaröryggi á Fáskrúsðfirði til úrvinnslu í nefndinni.
Mannvirkja- og veitunefnd þakkar fyrir erindið og felur forstöðumanni veitna að vinna málið áfram í samstarfi við forsvarsmenn Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:00 

Til bakaPrenta