Til bakaPrenta
Mannvirkja- og veitunefnd - 2

Haldinn í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði,
08.07.2022 og hófst hann kl. 16:00
Fundinn sátu: Elís Pétur Elísson varaformaður, Kristinn Þór Jónasson aðalmaður, Bryngeir Ágúst Margeirsson aðalmaður, Birkir Snær Guðjónsson varamaður, Ívar Dan Arnarson varamaður, Marinó Stefánsson embættismaður.
Fundargerð ritaði: Marinó Stefánsson, sviðsstjóri framkvæmdasviðs


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2001140 - Fjarðabyggðarhöll - ástand og aðgerðir
Mannvirkja- og veitunefnd fór í skoðunarferð í Fjarðabyggðarhöllina og með nefndinni var Valgeir Kjartansson frá Mannvit. Sviðstjóra framkvæmdasviðs falið að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum og leggja fyrir að nýju.
 
Gestir
Valgeir Kjartansson Mannvit - 00:00
2. 2101055 - Íþróttahús Reyðarfirði - nýbygging 2021
Mannvirkja- og veitunefnd fór í skoðunarferð í nýja íþróttahúsið á Reyðarfirði. Áætluð verklok eru í september. Lýsir nefndin yfir ánægju sinni með þetta glæsilega mannvirki.
3. 2202061 - Fundargerðir Heilbrigðiseftirlits Austurlands 2022
Fram lögð til kynningar fundargerð Heilbrigðiseftirlits Austurlands.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:00 

Til bakaPrenta