Til baka | Prenta |
Bæjarstjórn - 366 |
Haldinn í fjarfundi,
19.12.2023 og hófst hann kl. 12:00 | | Fundinn sátu: Arnfríður Eide Hafþórsdóttir varamaður, Jón Björn Hákonarson forseti bæjarstjórnar, Þuríður Lillý Sigurðardóttir aðalmaður, Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir 1. varaforseti bæjarstjórnar, Stefán Þór Eysteinsson aðalmaður, Ragnar Sigurðsson aðalmaður, Kristinn Þór Jónasson aðalmaður, Þórdís Mjöll Benediktsdóttir aðalmaður, Heimir Snær Gylfason aðalmaður, Jóna Árný Þórðardóttir bæjarstjóri, Þórður Vilberg Guðmundsson embættismaður. | | Fundargerð ritaði: Þórður Vilberg Guðmundsson, forstöðumaður stjórnsýslu- og upplýsingamála | | Til fundarins var boðað með afbrigðum frá tímafresti fundarboðs en bæjarfulltrúar höfðu samþykkt slíkt og er það staðfest af fundarmönnum í upphafi fundar. | |
| | Dagskrá: | | | | 1. 2311037 - Útsvar 2024 | Forseti mælti fyrir breytingu á álagningarhlutfalli útsvars.
Vísað frá bæjarráði tillögu að breyttu álagningarhlutfalli útsvars 2024. Lagt er til að áður samþykkt álagningarhlutfall útsvars fyrir árið 2024, sem ákveðið er skv. 1. mgr. 23. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995 hækki um um 0,23% og verði eftir breytinguna 14,97%. Er þessi breyting gerð í samræmi við ákvæði um breytingu á fjármögnun á þjónustu við fatlað fólk í samkomulagi ríkis og sveitarfélaga frá 15. desember 2023. Um er að ræða tilfærslu á milli tekjuskatts og útsvars og hefur ákvörðunin ekki áhrif á heildar skattbyrði einstaklinga.
Bæjarstjórn Fjarðabyggðar samþykkir tillögu að breytingu á álagningarhlutfalli útsvars 2024 með 9 atkvæðum | | |
|
| | Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 12:05 |
|
|
Til baka | Prenta |