Til bakaPrenta
Hafnarstjórn - 247

Haldinn í Molanum fundarherbergi 3,
30.06.2020 og hófst hann kl. 16:00
Fundinn sátu: Sigurður Ólafsson formaður, Eydís Ásbjörnsdóttir varaformaður, Sævar Guðjónsson aðalmaður, Arnfríður Eide Hafþórsdóttir aðalmaður, Rúnar Már Gunnarsson aðalmaður, Karl Óttar Pétursson bæjarstjóri, Marinó Stefánsson embættismaður, Birgitta Rúnarsdóttir embættismaður.
Fundargerð ritaði: Birgitta Rúnarsdóttir, verkefnastjóri


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2006135 - 7.000 tonna framleiðsla á laxi í Stöðvarfirði á vegum Fiskeldis Austfjarða hf. - beiðni um umsögn
Fiskeldi Austfjarða hf. hafa tilkynnt til athugunar Skipulagsstofnunar frummatsskýrslu 7.000 tonna framleiðslu á laxi í Stöðvarfirði, Fjarðabyggð.
Samkvæmt 10. gr. laga nr. 106/2000 óskar Skipulagsstofnun eftir umsögn um mat á umhverfisáhrifum framkvæmdarinnar í samræmi við 24. gr. reglugerðar nr. 660/2015 um mat á umhverfisáhrifum. Meðfylgjandi er frummatsskýrsla um mat á umhverfisáhrifum ofangreindrar framkvæmdar auk viðauka.
Kynnt tilkynning um beiðni á umsögn vegna frummatsskýrslu. Hafnarstjórn ræddi forsendur og felur atvinnu- og þróunarstjóra að taka saman gögn fyrir umsögn í samstarfi við verkefnastjóra hafna og leggja fyrir hafnarstjórn.
2. 2006117 - Ósk um umsögn hafnaryfirvalda
Erindi frá Fiskistofu dags. 19. júní 2020 þar sem óskað er eftir umsögn vegna umsóknar Síldarvinnslunnar hf. um leyfi til heimavigtunar uppsjávarfisks í fiskiðjuveri fyrirtækisins í Neskaupstað.
Hafnarstjórn er fylgjandi því að Síldarvinnslunni h.f. verði veitt heimavigtunarleyfi, en fyrirtækið er búið að leggja í miklar fjárfestingar á háþróuðum vigtarbúnaði. Hafnarstjóra er falið að skrifa umsögn í samræmi við álit hafnarstjórnar og senda inn til Fiskistofu.
3. 2003091 - Eskifjarðarhöfn - stækkun
Lögð fram til kynningar ákvörðun Skipulagsstofnunar vegna stækkunar Eskifjarðarhafnar sem barst þann 25.júní síðastliðinn.
4. 1908100 - Verkefni hafnarsjóðs
Framlagt minnisblað vegna vöktunar Mjóeyrarhafnar. Hafnarstjórn felur hafnarstjóra að ræða við mögulega þjónustuaðila um fyrirkomulag sólarhringsvöktunar á Mjóeyrarhöfn og leggja málið fyrir hafnarstjórn að nýju.
5. 2005062 - Ársskýrsla Fjarðabyggðarhafna 2019
Lögð fram til kynningar drög að ársskýrslu Fjarðabyggðarhafna 2019
6. 2006122 - Sjávarútvegsráðstefnan 2020
Sjávarútvegsráðstefnan 2020 verður haldin í Hörpu dagana 19. og 20. nóvember. Sjávarútvegsráðstefnan stuðlar að faglegri og fræðandi umfjöllun um sjávarútveg og er vettvangur fyrir samskipti allra þeirra sem koma að greininni. Hafnarstjórn mun senda fulltrúa á ráðstefnuna.
7. 2007005 - Lagfæring fjöru utan við Bæjarbryggju - Neskaupstaður
Hafnarstjórn samþykkir að fara í lagfæringar á fjöru utan við Bæjarbryggjuna á Norðfirði þar sem sjógangur hefur étið mikið úr fjörunni. Markmið framkvæmdarinnar er að auka notagildi fjörunnar.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:30 

Til bakaPrenta