Til bakaPrenta
Bæjarráð - 756

Haldinn í Molanum fundarherbergi 3,
27.06.2022 og hófst hann kl. 08:30
Fundinn sátu: Stefán Þór Eysteinsson formaður, Þuríður Lillý Sigurðardóttir varaformaður, Ragnar Sigurðsson aðalmaður, Jón Björn Hákonarson bæjarstjóri, Gunnar Jónsson embættismaður, Snorri Styrkársson embættismaður.
Fundargerð ritaði: Gunnar Jónsson, 


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2206068 - Aldurstakmark í líkamsræktir Fjarðabyggðar
Vísað frá íþrótta- og tómstundanefnd til afgreiðslu bæjarráðs tillögu um að ungmenni á þrettánda ári fá aðgeng að líkamsræktum Fjarðabyggðar. Gildir frá 1. júní ár hvert fyrir ungmenni sem eru á þrettánda ári.
Bæjarráð samþykkir tillögu nefndarinnar.
Íþrótta- og tómstundanefnd - 100 (20.6.2022) - Aldurstakmark í líkamsræktir Fjarðabyggðar.pdf
Aldurstakmark í líkamsræktir Fjarðabyggðar..pdf
2. 2205172 - Nefndaskipan í Fjarðabyggð 2022 - 2026, skipan upplýsingaöryggisnefndar
Skipan í upplýsingaöryggisnefnd. Bæjarráð kýs fimm fulltrúa í upplýsingaöryggisnefnd. Upplýsingaöryggisnefnd er bæjarráði til ráðuneytis um persónuverndar- og upplýsingaöryggismál. Bæjarráð samþykkir að nefndina skipi bæjarritari, stjórnandi félagsþjónustu og barnaverndar, fræðslustjóri, forstöðumaður stjórnsýslu- og upplýsingamála ásamt persónuverndarfulltrúa.
Undirritað erindisbréf uppfært.pdf
3. 2206084 - Erindi til sveitarstjórnar vegna stefnumótunar í þremur málaflokkum
Framlagður tölvupóstur frá innviðaráðuneytinu vegna stefnumótunar. Innviðaráðuneytið hefur ýtt úr vör vinnu við endurskoðun stefnumótandi áætlunar í málefnum sveitarfélaga 2019-2033 og Landsskipulagsstefnu 2015-2026 ásamt því að móta nýja húsnæðisstefnu.
Bæjarráð felur bæjarstjóra ásamt sviðsstjórum að svara umbeðnum upplýsingum.
Tölvupóstur INR.pdf
4. 2206094 - Endurskoðun samþykktar um bygginganefnd í Fjarðabyggð
Framlögð drög að uppfærðri samþykkt um bygginganefnd í Fjarðabyggð vegna breytinga á samþykktum sveitarfélagsins. Samþykktin var upphaflega samþykkt árið 2013, 820/2013.
Bæjarráð samþykkir uppfærðar samþykktir fyrir sitt leyti og vísar þeim til fyrri umræðu bæjarstjórnar og kynningar umhverfis- og skipulagsnefndar.
B_nr_820_2013.pdf
Samþykkt um bygginganefnd 2022.pdf
5. 2201124 - 735 Dalbraut 10 - umsókn um lóð
Vísað frá umhverfis- og skipulagsnefnd til afgreiðslu bæjarráðs lóðarumsókn fyrir geymsluhúsnæði að Dalbraut 10 á Eskifirði en afgreiðslu umsóknar lóðar var frestað þar sem deiliskipulag var ekki tilbúið en nú hefur það verið staðfest.
Bæjarráð staðfestir úthlutun lóðarinnar.
6. 2205290 - Breyting á kosningalögum 2022 - Dómsmálaráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 942022,
Dómsmálaráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 94/2022, breyting á kosningalögum. Framlögð er umsögn formanns yfirkjörstjórnar.
Bæjarráð tekur undir umsögn formanns yfirkjörstjórnar og felur bæjarritara að skila umsögn.
umsögn vegna áforma um lagabreytingu júní 2022.pdf
7. 2206097 - Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2022
Fjármálaráðstefna sveitarfélaga er áformuð 13. til 14. október.
Bæjarráð samþykkir að gefa aðalfulltrúum bæjarstjórnar kost á að sitja fyrstu fjármálaráðstefnu kjörtímabilsins. Bæjarráð ásamt bæjarstjóra og fjármálastjóra sitja ráðstefnuna.
8. 2104136 - Starfs- og fjárhagsáætlun hafnarstjórnar 2022
Vísað frá hafnarsjóði til afgreiðslu bæjarráðs tillögu um gerð viðauka við fjárhagsáætlun 2022.
Bæjarráð felur fjármálastjóra gerð viðauka við fjárhagsáætlun 2022.
Fundargerðir til staðfestingar
9. 2206004F - Hafnarstjórn - 279
Fundargerð hafnarstjórnar frá 14. júní lögð fram til afgreiðslu
9.1. 2104136 - Starfs- og fjárhagsáætlun hafnarstjórnar 2022
9.2. 2101071 - Fóðurprammi sekkur við Gripalda
9.3. 2205197 - World Hydrogen Summit 2022
9.4. 2206006 - Umsókn um undanþágu frá hafnsöguskyldu - Dettifoss
10. 2206010F - Umhverfis- og skipulagsnefnd - 1
Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar frá 20. júní lögð fram til afgreiðslu
10.1. 2205298 - Erindisbréf umhverfis- og skipulagsnefndar
10.2. 2104008 - 750 Hafnargata 23 - Framkvæmdaleyfi, fylling
10.3. 2205237 - 750 Framkvæmdaleyfi - Strenglögn frá Fáskrúðsfirði að Kolfreyjustað
10.4. 2205286 - 740 Ingunarveita að gatnamótum Leiruvegar og Hafnarnaust - Framkvæmdaleyfi vegna skurða í tengslum við stofnlögn
10.5. 2201005 - Umhverfismál 2022
10.6. 2004108 - Nytjamarkaður, Fjb.
10.7. 2205141 - 730 Búðarmelur 27 - umsókn um lóð
10.8. 2205142 - 730 Búðarmelur 29 - umsókn um lóð
10.9. 2205143 - 730 Búðarmelur 31 - umsókn um lóð
10.10. 2205119 - 740 Naustahvammur 20 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi
10.11. 2205128 - 735 Karlsstaðir - Umsókn um byggingarheimild, skálavarðarhús
10.12. 2205267 - 760 Sólheimar 9 - Umsókn um byggingarleyfi, einbýlishús
10.13. 2205216 - 740 Egilsbraut 26 - umsókn um stöðuleyfi
10.14. 2205172 - Nefndaskipan í Fjarðabyggð 2022 - 2026
10.15. 2205257 - Frumvarp til laga um skipulagslög (uppbygging innviða), 573. mál.
10.16. 2201124 - 735 Dalbraut 10 - umsókn um lóð
11. 2206008F - Félagsmálanefnd - 154
Fundargerð félagsmálanefndar frá 22. júní lögð fram til afgreiðslu
11.1. 2201062 - Félagsmálanefnd 2022
11.2. 2104133 - Starfs- og fjárhagsáætlun félagsmálanefndar 2022
11.3. 2001250 - Sprettur
11.4. 2103044 - Áhrif nýrrar jafnréttislöggjafar á sveitarfélög
11.5. 2205281 - Húsnæðismál félags eldri borgara á Eskifirði
12. 2206009F - Íþrótta- og tómstundanefnd - 100
Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar frá 22. júní lögð fram til afgreiðslu
12.1. 2206075 - Fundaáætlun íþrótta- og tómstundanefndar vetur 2022
12.2. 2206026 - Notkun íþrótta- og tómstundastyrk barna fyrir líkamsræktir Fjarðabyggðar
12.3. 2205172 - Nefndaskipan í Fjarðabyggð 2022 - 2026
12.4. 2206068 - Aldurstakmark í líkamsræktir Fjarðabyggðar
12.5. 2203095 - Umsókn um íþróttastyrk
12.6. 2203113 - Umsókn um íþróttastyrk
12.7. 2202158 - Umsókn um íþróttastyrk
12.8. 2206072 - Fjárhagsyfirlit íþrótta- og tómstundamála 2022
12.9. 2205311 - Talning þátttakenda vegna styrkveitinga meginfélaga
12.10. 2205030 - Efling á félagsstarfi fullorðinna á árinu 2022 í kjölfar Covid-19
12.11. 2206074 - Íþrótta- og tómstundasvið yfirlit 2022
14. 2206012F - Stjórn menningarstofu og safnastofnunar - 1
Fundargerð stjórnar menningarstofu og safnastofnunar frá 24. júní lögð fram til afgreiðslu
14.1. 2205296 - Erindisbréf stjórnar menningarstofu og safnastofnunar
14.2. 2205172 - Nefndaskipan í Fjarðabyggð 2022 - 2026 - fulltrúar í stjórn Héraðsskjalasafns Austfirðinga
14.3. 2205172 - Nefndaskipan í Fjarðabyggð 2022 - 2026 fulltrúar í stjórn Sjóminjasafns Austurlands
14.4. 2205172 - Nefndaskipan í Fjarðabyggð 2022 - 2026 - fulltrúar í stjórn Tónlistarmiðstöðvar Austurlands
14.5. 2206071 - Starfshópur um framtíð Íslenska Stríðsárasafnsins
14.6. 2109214 - Verkefni menningarstofu 2022
14.7. 2204141 - Starfsemi og þjónusta safna Fjarðabyggðar sumarið 2022
14.8. 2206085 - Menningar- og listahátíðin innsævi
Fundargerðir til kynningar
13. 2202112 - Barnaverndarnefnd 2022
Fundargerð barnaverndarnefndar frá 21. júní lögð fram til afgreiðslu.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:30 

Til bakaPrenta