| |
| 1. 2210209 - Nýting á lóðinni Ægisgötu 6 - 730 til sýninga | Fram lagðar hugmyndir skipulags- og umhverfisfulltrúa og forstöðumanns menningarstofu um nýtingu lóðarinnar Ægisgötu 6 á Reyðarfirði til útisýninga listaverka. Stjórn menningarstofu og safnastofnunar lýst mjög vel á þær hugmyndir sem fram eru lagðar og felur forstöðumanni menningarstofu í samstarfi við skipulags- og umhverfisfulltrúa að vinna að málinu fyrir næsta sumar. | | Minnsblað vegna Ægisgötu 6 og sýningahalds.pdf | | Minnisblað vegna Ægisgötu 6 - ALB.pdf | | |
|
| 2. 2204141 - Starfsemi og þjónusta safna Fjarðabyggðar sumarið 2022 | | Framlögð skýrsla forstöðumanns safnastofnunar um starfsemi safnanna á árinu 2022. | | Söfn 2022_skýrsla til stjórnar MS.pdf | | |
|
| 3. 2109214 - Verkefni menningarstofu 2022 | | Framlögð greinargerð um starfsemi menningarstofu á árinu 2022 sem fjallar um verkefni og áherslur í starfsemi ásamt umfjöllun sem sveitarfélagið hefur fengið vegna menningarstarfsemi. | | Minnisblað fyrir stjórn MS - Verkefnayfirlit Menningarstofu 2022_1.pdf | | Hlekkir á fréttir - Menningarstofa 2022.pdf | | |
|
| 4. 2211009 - Endurskoðun Menningarstefnu Fjarðabyggðar | Menningarstefna Fjarðabyggðar þarfnast endurskoðunar en stefnan var í gildi fyrir árin 2019 til 2021. Umræða um framkvæmd endurskoðun stefnunnar. Stjórn felur forstöðumanni menningarstofu að kanna fyrir næsta fund leiðir til endurskoðunar stefnunnar og ræða við aðila sem hafa komið að gerð stefnumörkunar í þessum málaflokkum. Lagt fyrir næsta fund stjórnar.
| | Endurskoðuð Menningarstefna Fjarðabyggðar 2019-2021.pdf | | |
|
| 5. 2203109 - Bókasafnið Norðfirði viðhaldsverkefni | Farið yfir framkvæmdir við bókasafnið á Norðfirði og stöðu safnsins. Greinargerð forstöðumanns Safnastofnunar lögð fram á fundi.
| | |
|