Til bakaPrenta
Mannvirkja- og veitunefnd - 13

Haldinn í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði,
21.04.2023 og hófst hann kl. 14:00
Fundinn sátu: Stefán Þór Eysteinsson formaður, Elís Pétur Elísson varaformaður, Ívar Dan Arnarson varamaður, Kristinn Þór Jónasson aðalmaður, Bryngeir Ágúst Margeirsson aðalmaður, Svanur Freyr Árnason embættismaður, Jóna Árný Þórðardóttir bæjarstjóri.
Fundargerð ritaði: Svanur Freyr Árnason, Forstöðumaður Veitna


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2303230 - Framkvæmdasvið verkefni 2023
Lögð fram lokaskýrsla Eflu vegna innivistar í Grunnskóla Eskifjarðar sem skilað var 19.apríl. Bæjarstjóri fór yfir ráðstafanir til að tryggja skólastarf út skólaárið vegna lokunar á 1.hæð grunnskólans. Unnið er að á framkvæmdarsviði að áætlun um viðgerðir við skólann á sumri komandi. Tekið fyrir hjá nefndinni á næsta fundi þegar áætlun liggur fyrir.
2. 2303230 - Framkvæmdasvið verkefni 2023
Lagður fram viðauki sem trúnaðarmál við samning um malbikunarstöð vegna efnistöku í Reyðarfirði. Mannvirkja og veitunefnd samþykkir viðaukan og felur bæjarstjóra frágang hans og undirritun.
3. 2304176 - Tenging vatnsveitu við sumarbústaðarlandið í Skuggarhlíðarhálsi (Seldal)
Erindi sumarhúsaeiganda í Seldal lagt fram er varðar tengingu á vatnsveitu við sumarhúsabyggðina. Forstöðumanni veitna falið að afla frekari upplýsinga og leggja fyrir nefndina á nýju.
Skipulagsuppdráttur 2012.pdf
4. 2304066 - Uppsetning Mílu á fjarskiptamastri á Fjarðabyggðahöllinni Reyðarfirði
Framlagður samningur við Mílu varðandi fjarskiptamastur á Fjarðabyggðarhöllinni. Nefndir samþykkir samninginn fyrir sitt leiti og vísar til afgreiðslu bæjarráðs.
5. 2304099 - Skólalóð Grunnskóla Reyðarfjarðar
Erindi frá stjórendum grunnskóla Reyðarfjarðar er varðar skipulag á skólalóð. Nefndir þakkar fyrir erindið og mun taka það inní fjárhagsáætlunar vinnu fyrir komandi ár. Framkvæmdasviði falið að halda utan um málið.
6. 2302021 - Úrgangsmál 2023 - kynningaefni og fleira
Vísað frá bæjarráði niðurstöður vegna úrgangsmála í Fjarðabyggð. Nefndin mun taka uppsetningu og rekstur grenndarstöðva til frekari útfærslu í tengslum við fjárhagsáætlunargerð. Vísað til verkefnastjóra umhverfismála til vinnslu. Áfram verður unnið að innleiðingu klippikorta 1.júní næstkomandi samkvæmt fyrri samþykktum.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 15:52 

Til bakaPrenta