Til bakaPrenta
Bæjarráð - 898

Haldinn í Molanum fundarherbergi 5,
10.06.2025 og hófst hann kl. 12:00
Fundinn sátu: Ragnar Sigurðsson formaður, Jón Björn Hákonarson varaformaður, Stefán Þór Eysteinsson aðalmaður, Jóna Árný Þórðardóttir bæjarstjóri, Gunnar Jónsson embættismaður, Þórður Vilberg Guðmundsson embættismaður.
Fundargerð ritaði: Gunnar Jónsson, bæjarritari
Jóna Árný, Jón Björn og Stefán Þór tóku þátt í fundi í gegnum fjarfundabúnað.


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2306119 - Gott að eldast-samþætting þjónustu Fjarðabyggð og HSA
Lögð fram drög að samningi um samþættingu heimastuðnings Fjarðabyggðar og heimahjúkrunar HSA með tillögum að breytingum frá HSA. Farið yfir stöðu málsins.
Bæjarráð felur bæjarstjóra ásamt sviðsstjóra fjölskyldusviðs að vinna málið áfram og leggja fyrir bæjarráð að nýju á næsta fundi.
 
Gestir
Stjórnandi stoð- og stuðningsþjónustu - 00:00
Guðjón Hauksson forstjóri heilbrigðisstofnunar - 00:00
Sviðsstjóri fjölskyldusviðs - 00:00
Karolína Andrésdóttir framkvæmdastjóri hjúkrunar - 00:00
2. 2302213 - Samningur við Skógræktarfélag Reyðarfjarðar
Lagðir fram endurskoðaðir uppdrættir af skógræktarsvæði næst byggðinni á Reyðarfirði þar sem búið er að færa mörk svæðisins upp frá væntanlegum stækkunarsvæðum byggðar.
Bæjarráð frestar afgreiðslu málsins.
4. 2506029 - Erindi v Flugvöll á Breiðdalsvík
Framlagt erindi Elísar Péturs Elíssonar og Friðriks Árnasonar vegna flugvallar í Breiðdal.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að taka málið upp við Isavia.
Tölvupóstur um flugvöll.pdf
5. 2506051 - Tillaga um stuðning við hjálparstarf á Gasa
Framlögð tillaga Fjarðalistans um stuðning við hjálparstarf á Gasa.

Tillaga Fjarðalistans um stuðning við hjálparstarf í Gaza

Fjarðalistinn leggur til að bæjarstjórn Fjarðabyggðar samþykki að veita 2.000.000 kr. styrk til hjálparsamtakanna Vonarbrúar til stuðnings mannúðaraðstoðar við íbúa í Gaza með sérstakri áherslu á velferð barna.

Rökstuðningur Fjarðalistans vegna tillögu:
Þúsundir barna og tugþúsundir óbreyttra borgara hafa látist í Gaza frá því að átökin hófust haustið 2023. Alvarleg mannúðarkrísa er í gangi þar sem umsátur, hungurvopn og sífelldar loftárásir hafa gert svæðið nánast ólífvænlegt. Börn eru sérstaklega berskjölduð. Þau hafa misst fjölskyldur sínar, heimili og aðgang að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu og menntun. Fólk víða um heim finnur til vanmáttar gagnvart þessum hörmungum en stuðningur við mannúðaraðstoð er eitt af fáu sem sveitarfélög eins og Fjarðabyggð geta gert og skiptir máli - bæði sem raunveruleg hjálp og táknræn aðgerð.
Langanesbyggð samþykkti þann 15. maí sl. að veita eina milljón króna í stuðning við hjálparstarf í Gaza, þrátt fyrir að íbúar sveitarfélagsins séu einungis um 540 talsins. Slík aðgerð er skýr siðferðileg afstaða og hvatning til annarra sveitarfélaga.
Fjarðabyggð er fjölmennara sveitarfélag með tæplega 5.000 íbúa. Með því að veita hjálparsamtökum fjárstuðning getur bæjarfélagið sýnt að það lætur sig varða velferð saklausra borgara - ekki síst barna - og stendur vörð um grundvallargildi siðmenningar og mannúðar. Með þessari aðgerð getur Fjarðabyggð tekið virkan þátt í samstöðu sveitarfélaga um mannréttindi og mannúð á tímum ofbeldis og neyðar.

Bókun meirihluta Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins:
Meirihluti bæjarráðs Fjarðabyggðar lýsir yfir djúpum áhyggjum af ástandinu í stríðshrjáðum löndum heimsíns og hvetur ríkisstjórn Íslands til að beita sér af festu á alþjóðavettvangi og innan fjölþjóðastofnana til að krefjast tafarlauss vopnahlés, veitingar mannúðaraðstoðar og virðingar fyrir lífi fólks og alþjóðalögum.
Eins og allir landsmenn þá fordæmum við morð og árásir á saklausa borgara um allan heim og hvetjum stríðandi fylkingar til að leggja niður vopn og semja um frið um leið og hugur okkar og samúð er með fólki sem líður fyrir stríðsrekstur hvar sem er í heiminum.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins taka heilshugar undir mannúðarsjónarmið tillögu Fjarðalistans en telja mikilvægt að ríkisvaldið haldi utan um aðgerðir sem þessar á erlendri grund og þær séu samræmdar milli opinberra aðila. Komi til slíkra aðgerða á vegum opinberra aðila hérlendis þá mun sveitarfélagið taka þátt á þeim grundvelli.
6. 2506020 - Ráðstefna Almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra 16. október 2025.
Árleg ráðstefna Almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra verður haldin fimmtudaginn 16. október frá kl. 13:00 til 16:30 á Hilton Reykjavík Nordica.
Bæjarráð samþykkir að senda fulltrúa á ráðstefnuna.
Tölvupóstur um ráðstefnu.pdf
7. 2506004 - 80 ára afmæli SÍS
Framlagt til kynningar boð Samband íslenskra sveitarfélaga en boðað er til afmælisráðstefnu þann 11. júní í tilefni af 80 ára afmæli samtakanna.
Fulltrúar Fjarðabyggðar sækja ráðstefnuna.
8. 2506047 - Til umsagnar 429. mál frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis
Framlagt til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða, nr. 116/2006 (strandveiðar).
Bæjarráð vísar til fyrri umsagna sinna um strandveiðar.
Þingskjal 586 ? 429. mál..pdf
9. 2506003 - Ársfundur Brákar 11.júní 2025
Framlagt boð á ársfund Brákar íbúðafélags hses sem haldinn verður 11. júní 2025.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að fara með umboð Fjarðabyggðar á ársfundinum.
Boðun ársfundar Brákar íbúðafélags hses 11. júní 2025.pdf
10. 2505153 - Viðaukaframlag vegna samþykkta réttindasafna R og B deilda
Lagt fram til kynningar svarbréf Brúar lífeyrissjóðs vegna erindis Fjarðabyggðar um skuldbindingar vegna réttindasafns.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna málið áfram.
Bæjarráð Fjarðabyggðar svarbréf 6.6.2025.pdf
11. 2504192 - Aðalfundur Breiðdalsseturs 2025
Framlagðar til kynningar fundargerðir aðalfundar Breiðdalsseturs frá 10. maí ásamt stjórnarfundargerð sama dag.
Breiðdalssetur Aðalfundur 10-maí-2025.pdf
Fundargerðir til kynningar
12. 2502038 - Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 2025
Framlögð til kynningar fundargerð 980. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga - 980.pdf
13. 2501007 - Fundargerðir stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga 2025
Framlögð til kynningar fundargerð stjórnar samtaka orkusveitarfélaga nr. 84.
stjórn Samtaka orkusveitarfélaga - 84.pdf
Umsogn um skattlagningu orkumannvirkja_samradsgatt.pdf
14. 2506042 - Ársskýrsla Krabbameinsfélags Austfjarða
Framlögð til kynningar árskýrsla Krabbameinsfélags Austfjarða vegna ársins 2024.
Krabbam.fél. Austfjarða - ársskýrsla 2024.pdf
Fundargerðir til staðfestingar
15. 2505028F - Fjölskyldunefnd - 34
Framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu fundargerð fjölskyldunefndar frá 2.júní.
15.1. 2501144 - Skóladagatöl 2025-2026
15.2. 2505063 - Starfsáætlun fjölskyldunefndar 2026
15.3. 2505205 - Bara tala - kynning
15.4. 2505018F - Öldungaráð - 17
16. 2505018F - Öldungaráð - 17
Framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu fundargerð öldungaráðs frá 26. maí.
16.1. 2406138 - Þarfagreining vegna húsnæðisuppbyggingar fyrir 60
16.2. 2306119 - Gott að eldast-samþætting þjónustu Fjarðabyggð og HSA
16.3. 2505050 - Öldungaráð - ýmislegt
16.4. 2505050 - Öldungaráð - ýmislegt
16.5. 2505167 - Öldungaráð - beiðni um sérstaka fjárveitingu til verkefna ráðsins
16.6. 2411169 - Starfsáætlun öldungaráðs
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 13:45 

Til bakaPrenta