Til bakaPrenta
Fjölskyldunefnd - 50

Haldinn í Búðareyri 2 fundarherbergi 2,
09.02.2026 og hófst hann kl. 16:15
Fundinn sátu: Ragnar Sigurðsson formaður, Birgir Jónsson varaformaður, Helga Rakel Arnardóttir aðalmaður, Jóhanna Sigfúsdóttir aðalmaður, Stefán Þór Eysteinsson aðalmaður, Laufey Þórðardóttir embættismaður, Magnús Árni Gunnarsson , Aðalheiður Björk Rúnarsdóttir , Líneik Anna Sævarsdóttir .
Fundargerð ritaði: Laufey Þórðardóttir, sviðsstjóri fjölskyldusviðs


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2601102 - Skóladagatöl 2026-2027
Fjölskyldunefnd staðfestir fyrri ákvörðun um sumarlokanir leikskóla árið 2026 og samþykkir fyrirliggjandi tillögu um sumarloknir árið 2027. Samþykkt er að fyrsti skóladagur í grunnskólum Fjarðabyggðar verði 24. ágúst 2026.
 
Gestir
Lisa Lotta Björnsdóttir - 00:00
2. 2602063 - Gjaldskrá frístundaheimila 2026 2.útgáfa
Tillaga að breytingu á gjaldskrá frístundaheimila í Fjarðabyggð lögð fyrir fjölskyldunefnd. Fjölskyldunefnd samþykkir tillöguna fyrir sitt leiti og vísar áfram til bæjarráðs.
 
Gestir
Lisa Lotta Björnsdóttir - 00:00
4. 2601063 - Úthlutun tíma í íþróttamannvirkjum - reglur og verkferlar (endurskoðun)
Lögð eru fram uppfærð drög að reglum um úthlutun tíma í íþróttamannvirkjum, ásamt verkferlum. Með reglunum er m.a. skýrt ferli og ábyrgð vegna úthlutunar til skóla til að tryggja samhæfingu og fullnýtingu mannvirkja. Málinu er vísað frá fjölskyldunefnd til afgreiðslu bæjarráðs.
5. 2602043 - Bréf vegna tóbaksnotkunar
Nefndin telur tilefni til að yfirfara reglurnar í ljósi ábendingarinnar og vísar erindinu til mannauðs- og umbótasviðs. Sviðstjóra mannauðs- og umbótasviðs er falið að svara erindinu.
6. 2602058 - Reglur um sérstakan húsnæðisstuðning 2026
Fjölskyldunefnd samþykkir breytingar á reglum Fjarðabyggðar um sérstakan húsnæðisstuðning og vísar til bæjarráðs.
8. 2510228 - Rannsókn fyrir húsnæðisþörf íbúa 60
Niðurstöður rannsóknar á húsnæðisþörf fyrir 60 ára og eldri kynntar fyrir fjölskyldunefnd.
11. 2601098 - Vallavinnusamningur 2026
Frestað til næsta fundar. Helga Rakel Arnardóttir vék af fundi undir þessum lið.
Almenn mál - umsagnir og vísanir
7. 2601242 - Til umsagnar 311. mál Réttindavernd fatlaðs fólks
Frumvarp til laga um réttindavernd fatlaðs fólks kynnt.
9. 2601241 - Til umsagnar 305. mál - Framkvæmd öryggisráðstafana samkvæmt dómsúrlausn
Frumvarp til laga um Framkvæmd öryggisráðstafana samkvæmt dómsúrlausn kynnt fyrir fjölskyldunefnd.
10. 2601243 - Til umsagnar 312. mál -Frumvarp til laga: Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir (stytting bótatímabils o.fl.)
Til umsagnar 312. mál. Frumvarp til laga - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir (stytting bótatímabils o.fl.). Sviðstjóra fjölskyldusviðs falið að rita umsögn í samræmi við umræður á fundinum.
Fundargerð
12. 2512006F - Öldungaráð - 22
fundargerð 22. fundar öldungaráðs kynnt
12.1. 2512056 - Heimsókn fulltrúa öldungaráðs á hjúkrunarheimilið Uppsali
12.2. 2512057 - Heimsókn fulltrúa öldungaráðs til félags eldra fólks á Fáskrúðsfirði
12.3. 2511118 - Viljayfirlýsing
12.4. 2509098 - Gjaldskrá stuðningsþjónustu 2026
13. 2601013F - Öldungaráð - 23
fundargerð 23. fundar öldungaráðs kynnt
13.1. 2511031 - Erindi frá öldungaráði Fjarðabyggðar til færni- og heilsumatsnefndar
13.2. 2411169 - Starfsáætlun öldungaráðs
13.3. 2510228 - Rannsókn fyrir húsnæðisþörf íbúa 60
Fundargerðir til kynningar
3. 2601236 - Fundargerðir farsældarráðs á Austurlandi 2026
Fundargerð 1. fundar Farsældaráðs Austurlands lögð fram til kynningar
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:00 

Til bakaPrenta