| |
1. 2303071 - Rekstur málaflokka 2023 - TRÚNAÐARMÁL | Lagt fram sem trúnaðarmál yfirlit um rekstur og fjárfestingar janúar - ágúst 2023 og yfirlit yfir skatttekjur og launakostnað janúar - september 2023. Einnig lagt fram yfirlit fjármálastjóra um þróun staðgreiðslu. | | |
|
2. 2305061 - Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2024 | Farið yfir vinnuna við fjárhagsáætlun ársins 2024 og niðurstöður í launaáætlun. Bæjarráð ítrekar að nefndir fari yfir launaáætlanir og nái þeim undir ramma sem úthlutað var í rammaúthlutun. Nefndir leggi fram forgangsröðun verkefna til að ná ramma launaáætlunar. | | |
|
3. 2305047 - Starfs- og fjárhagsáætlun íþrótta- og tómstunda 2024 | Lögð fram samantekt fjármálastjóra og deildarstjóra íþróttamannvirkja um rekstur Sundlaugarinnar á Breiðdalsvík. Fram lagt og kynnt.
| | |
|
4. 2305069 - Starfs- og fjárhagsáætlun bæjarráðs 2024 | Framlögð gögn um kostnað við upplýsingatækni. Tekið fyrir að nýju í bæjarráði. | | |
|
5. 2310039 - Húsnæðisáætlun Fjarðabyggðar 2024 | Endurskoðun húsnæðisáætlunar Fjarðabyggðar fyrir árið 2024 rædd. Vísað til fjármálastjóra. | | |
|
6. 2303230 - Framkvæmdasvið verkefni 2023 | Vísað frá mannvirkja- og veitunefnd til afgreiðslu bæjarráðs fjármögnun framkvæmda við Tröllaveg. Sviðsstjóri fór yfir áætlunina sem er tilkomin vegna ófyrirséðra skemmda við götuna. Bæjarráð felur sviðsstjóra að fara yfir bráðaaðgerðir og leggja að nýju fyrir mannvirkja- og veitunefnd. | | | Gestir | Sviðsstjóri framkvæmda- og umhverfissviðs - 00:00 | |
|
7. 2209031 - Yfirlýsing vegna kaupréttar | Forkaupsréttur að Hafnargötu 6 á Reyðarfirði ræddur. | | |
|
8. 2303238 - Stöðuúttekt stjórnsýslunnar 2023 | Gerð grein fyrir stöðu mála í vinnu Deloitte við stöðugreiningu stjórnsýslu Fjarðabyggðar. | | |
|
9. 2310038 - Egilsbraut 4 - Nytjamarkaður ósk um aukið rými | Framlagt erindi Sigurðar Jenssonar f.h. nytjamarkaðarins Steinsins í Neskaupstað varðandi húsnæðismála markaðarins. Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna málið áfram. Vísað til umfjöllunar umhverfis- og skipulagsnefndar. | | |
|
10. 2302095 - Umsókn um stofnframlög á árinu 2023 | Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hefur opnað fyrir umsóknir um stofnframlög. Lögð fram samantekt fjármálastjóra um húsnæðismarkaðinn og mögulega umsókn um stofnframlög. Bæjarráð samþykkir að sótt verði um stofnframlög samanber framlagða tillögu. Fjármálastjóra falið að sækja um framlögin. | | |
|
11. 2203163 - Römpum upp Ísland | Framlagt erindi frá Römpum upp Ísland vegna samvinnu við gerð rampa við húsnæði í eigu sveitarfélaga. Vísað til mannvirkja- og veitunefndar. | | |
|
12. 2110173 - Forvarna- og öryggisnefnd fundargerðir | Framlögð fundargerð 14. fundar forvarna- og öryggisnefndar Fjarðabyggðar frá 3. október 2023. Lagt fram til kynningar. | | |
|
13. 2301183 - Fundargerðir Samband Íslenskra sveitarfélaga 2023 | Fundargerð 934. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga lögð fram til kynningar. | | |
|
14. 2310014 - Alþjóðlegur minningardagur fórnarlamba umferðarslysa 2023 | Framlagt til kynningar bréf innviðaráðuneytis um minningardag um fórnarlömb umferðarslysa sem er haldinn 19. nóvember 2023. Bæjarráð felur slökkviliðsstjóra að halda utanum skipulag dagsins. | | |
|
15. 2310027 - Umsögn vegna uppbyggingar og umgjörð lagareldis stefna til ársins 2040 | Framlögð stefna Matvælaráðuneytis vegna lagareldis til ársins 2040. Leggja þarf fram umsögn vegna málsins fyrir 4. nóvember 2023. Bæjarstjóra falið að veita umsögn vegna málsins og leggja fyrir bæjarráð. | | |
|
16. 2310034 - Beiðni um uppsetningu hraðhleðslustöðva | Framlagt erindi frá Instavolt varðandi uppsetningu hraðhleðslustöðva í Fjarðabyggð. Bæjarráð vísar erindi til umhverfis- og skipulagsnefndar til umsagnar vegna skipulagsmála. | | |
|