| |
1. 2301154 - Fundaáætlun félagsmálanefndar vor 2023 | Nefndin samþykkti fundaáætlun félagsmálnefndar fyrir fyrri hluta árs 2023, með einni breytingu, ekki verður fundur 17. maí heldur þriðjudaginn 16. maí. | Fundaáætlun félagsmálanefndar vor 2023.pdf | | |
|
2. 2302029 - Fjárhagsyfirlit félagsmálanefndar 2022 | Sviðstjóri fjölskyldusviðs fór yfir fjárhagsyfirlit ársins 2022 í félagsþjónustu og barnavernd. Rekstrarniðurstaða félagsþjónustunnar í heild fór 2% yfir áætlun. Skýringar eru í meðfylgjandi minnisblaði. | | |
|
3. 2301026 - Samvinna Fjarðabyggðar og Hornafjarðar um barnaverndarþjónustu | Stjórnandi félagsþjónustu og barnaverndar Fjarðabyggðar kynnir samning um sameiginlega barnaverndarþjónustu Fjarðabyggðar og Sveitarfélagsins Hornafjarðar, sem samþykktur var á fundi bæjarstjórnar Fjarðabyggðar 2. febrúar 2023. | Samningur um barnaverndarþjónustu Fjarðabyggðar og Hornafjarðar 3.2.2023.pdf | | |
|
4. 2302033 - Fagteymi á fjölskyldusviði | Laufey þórðardóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs Fjarðabyggðar kynnir fagteymi innan stoð og stuðningsþjónustu. Fagteymi í málefnum fatlaðs fólks og fagteymi í málefnum eldra fólks. Markmið teymanna er að: Efla enn frekar faglegt starf í málaflokknum, marka stefnu með tilliti til bestu upplýsinga og þekkingar á hverjum tíma í samráði við nefndir og ráð og styðja við og styrkja starfsmenn og stjórnendur | | |
|
5. 2302031 - Kynning nýrra félagslegra íbúða í Fjarðabyggð. | Laufey Þórðardóttir sviðstjóri fjölskyldusviðs kynnir fimm nýjar íbúðir í Fjarðabyggð í eigu Brákar sem Fjarðabyggð er boðið að nýta til félagslegrar úthlutunar. Farið var yfir fjölda fólks á biðlista. | | |
|
6. 2302044 - Sérstakur húsnæðisstuðningur 2023 | Breytingar á reglum um sérstakan húsnæðisstuðning fyrir árið 2023. Eftirfarandi breytingar sem gerðar voru á eldri reglum. Tekin voru út tekju- og eignarviðmið í stað þess er vísað er í leiðbeiningar félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins. Tekju- og eignaviðmið verða birt undir flipanum gjaldskrá á heimasíðu Fjarðabyggðar. Félagsmálanefnd samþykkir breytingar fyrir sitt leyti. | | |
|