Til bakaPrenta
Bæjarráð - 812

Haldinn í Molanum fundarherbergi 5,
11.09.2023 og hófst hann kl. 08:30
Fundinn sátu: Stefán Þór Eysteinsson formaður, Þuríður Lillý Sigurðardóttir varaformaður, Ragnar Sigurðsson aðalmaður, Jóna Árný Þórðardóttir bæjarstjóri, Gunnar Jónsson embættismaður, Þórður Vilberg Guðmundsson embættismaður, Snorri Styrkársson embættismaður.
Fundargerð ritaði: Gunnar Jónsson, bæjarritari


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2305069 - Starfs- og fjárhagsáætlun bæjarráðs 2024
Lagt fram bréf fjármálastjóra um úthlutun bæjarráðs á fjárhagsramma nefndarinnar fyrir árið 2024 í A hluta.
Bæjarráð felur sviðsstjórum að vinna fjárhagsáætlun fyrir málaflokka og leggja fyrir að nýju.
2. 2309019 - Erindi vegna gámasvæðis á Reyðarfirði
Framlagt erindi eiganda gáma á gámasvæðinu á Reyðarfirði vegna afgreiðslu umhverfis- og skipulagsnefndar á gámasvæði á Reyðarfirði.
Bæjarráð vísar erindi til umhverfis- og skipulagsnefndar.
Erindi frá gámeigendum á Reyðarfirði.pdf
3. 2302095 - Umsókn um stofnframlög á árinu 2023
Rætt um framhald uppbyggingar almennra leiguíbúða fyrir tekju- og eignalága í Fjarðabyggð en opnað verður fyrir umsóknir um stofnframlög á næstunni.
4. 2108124 - Grænn orkugarður á Reyðarfirði
Umræða um stöðu mála vegna uppbyggingu græns orkugarðs á Reyðarfirði.
5. 2309075 - Samgöngur í Fjarðabyggð
Framlögð tillaga Sjálfstæðisflokksins varðandi breyttar áherslur og forgangsröðun í samgöngumálum í Fjarðabyggð.
Tekið fyrir að nýju í bæjarráði.
6. 2309074 - Almenningssamgöngur í Fjarðabyggð 2024 - 2027
Framlagt minnisblað forstöðumanns stjórnsýslu- og upplýsingamála varðandi almenningssamgöngur í Fjarðabyggð 2024.
Bæjarráð samþykkir að hafinn verði undirbúningur að útboði almenningssamgangna á grundvelli tillögu minnisblaðsins.
Minnsblað - almenningssamgöngur 2024.pdf
7. 2304174 - Boð Matvælaráðuneytisins til samráðs vegna stefnumótunar lagareldis
Framlögð drög að umsögn Fjarðabyggðar vegna samráðs um stefnumörkun í lagareldi.
Bæjarráð samþykkir umsögnina.
8. 2309049 - Hvatning til sveitastjórna um mótun málstefnu
Framlagt til kynningar erindi innviðaráðuneytins þar sem skorað er á sveitastjórnir að hefja vinnu við mótun málstefnu.
sveitarfélögin v málstefnu.pdf
9. 2309021 - Ársfundur jöfnunarsjóðs sveitarfélaga 2023
Framlagt fundarboð á Ársfund Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga sem fram fer miðvikudaginn 20. september 2023 á Hilton Nordica Reykjavík.
Bæjarráð felur Jónu Árnýju Þórðardóttur bæjarstjóra að fara með umboð Fjarðabyggðar á fundinum.
Til framkvæmdastjóra sveitarfélaga.pdf
10. 2309050 - Aukaðalfundur Samtaka orkusveitarfélga 2023
Framlagt fundarboð á aukaaðlfund Samtaka Orkusveitarfélaga sem fram fer þriðjudaginn 19. september kl. 13:00 í fjarfundi.
Bæjarráð felur Jónu Árnýju Þórðardóttar bæjarstjóra að fara með umboð Fjarðabyggðar á fundinum.
FW: Aukaaðalfundur Samtaka orkusveitarfélaga 19. september 2023.pdf
11. 2309063 - Aðalfundur Eignarhaldsfélagsins Hrauns ehf fyrir árið 2022
Aðalfundur Eignarhaldsfélagsins Hrauns ehf., haldinn samhliða fundi bæjarráðs vegna afgreiðslu ársreiknings 2022 og uppfærslu á prókúru fyrir félagið.
Ársreikningur undirrituður. Jónu Árnýju Þórðardóttur er falin prókúra fyrir félagið.
12. 2309062 - Ársreikningur Eignarhaldsfélagsins Hrauns ehf fyrir árið 2022
Framlagður ársreikningur Eignarhaldsfélagsins Hrauns ehf. fyrir árið 2022 til undirritunar stjórnar. Er þegar samþykktur í samstæðureikningi Fjarðabyggðar af bæjarstjórn.
Ársreikningurinn er undirritaður.
13. 2309061 - Ársreikningur Hitaveitu Fjarðabyggðar 2022
Framlagður ársreikningur Hitaveitu Fjarðabyggðar fyrir árið 2022 til undirritunar. Ársreikningurinn er þegar samþykktur í samstæðureikningi Fjarðabyggðar af bæjarstjórn.
Ársreikningur undirritaður.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:40 

Til bakaPrenta