Til bakaPrenta
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 8

Haldinn í Molanum fundarherbergi 1 og 2,
27.09.2022 og hófst hann kl. 16:00
Fundinn sátu: Þuríður Lillý Sigurðardóttir formaður, Birkir Snær Guðjónsson aðalmaður, Kristinn Þór Jónasson aðalmaður, Heimir Snær Gylfason aðalmaður, Björgvin V Guðmundsson varamaður, Jörgen Sveinn Þorvarðarson embættismaður, Aron Leví Beck Rúnarsson embættismaður.
Fundargerð ritaði: Aron Leví Beck, Skipulags- og umhverfisfulltrúi


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2208083 - Starfs- og fjárhagsáætlun umhverfis- og skipulagsnefndar 2023
Framhald umræðu um fjárhagsáætlun umhverfis- og skipulagssviðs frá síðasta fundi. Lagt fram yfir frá fjármálastjóra um teksturinn í fyrra og í ár ásamt fyrstu tillögu að sundurliðaðri fjárhagsáætlun fyrir árið 2023.
 
Gestir
Snorri Styrkársson - 00:30
2. 2209218 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi
Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi varðandi Urðarteig 17, Neskaupsstað. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning.
3. 2205208 - 740 Melagata 12 - umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi
Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi varðandi Melgötu 12, Neskaupsstað. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning.
4. 2209220 - Umsókn um lóð Hafnarbraut 40
Sótt eru um lóð að Hafnarbraut 40, Neskaupstað. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að úthluta lóðinni og vísar til endanlegrar afgreiðslu bæjarráðs.
5. 2209201 - Umsókn um lóðir Hlíðarbrekka 1-3-5-7
Sótt eru um lóðirnar Hlíðarbrekku 1-3-5-7, Fáskrúðsfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að úthluta lóðinni og vísar til endanlegrar afgreiðslu bæjarráðs.
6. 2209200 - Umsókn um stöðuleyfi
Umsókn um stöðuleyfi fyrir færanleg starfsmanna híbýli að Hlíðarbrekku 1-7. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir stöðuleyfi fyrir fjórum íbúðagámaeiningum að uppfylltum skilyrðum viðeigandi stofnana.
7. 2209217 - Umferðaröryggi - Gatnamót Stekks og Kvíabrekku
Umferðaröryggi - Gatnamót Stekks og Kvíabrekku.Umhverfis- og skipulagsnefnd felur starfsmönnum sviðsins að koma með úrlausn á vandamálinu og leggja fyrir að nýju.
Minnisblað.pdf
8. 2208118 - Fugladauði
Minnisblað varðandi fugladauða í Fjarðabyggð, til kynningar.
Minnisblað.pdf
9. 2209189 - Ný staðsetning gámasvæða
Tillaga að nýjum gámasvæðum á Hjallaleiru 10, Reyðarfirði og Símonartúni, Eskifirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir tillögur að nýjum gámasvæðum á Reyðarfirði og Eskifirði. Nefndin felur starfsmönnum sviðsins að sjá til þess að frágangur og ásýnd lóðanna verði til fyrirmyndar.
Hjallaleira 10.pdf
símonartún.pdf
10. 2209151 - Geymslusvæði Eskju á Eskifirði
Aðgerðir varðandi geymslusvæði Eskju á Eskifirði til kynningar. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að vinna málið áfram í samstarfi við Eskju.
11. 2209110 - Lystigarðurinn í Neskaupstað
Framlagt bréf frá Lystigarðsnefnd Kvenfélagsins Nönnu í Neskaupstað um lystigarðinn í Neskaupstað. Erindi vísað til umhverfis- og skipulagsnefndar. Sviðsstjóra framkvæmdasviðs, garðyrkjustjóra og skipulags- og umhverfisfulltrúa er falið að funda með lystigarðsnefndinni. Umhverfis- og skipulagsnefnd tekur undir afstöðu bæjarráðs að fela sviðsstjóra framkvæmdasviðs, garðyrkjustjóra og skipulags- og umhverfisfulltrúa að funda með lystigarðsnefndinni. Nefndin tekur undir áhyggjur Lystigarðsnefndar varðandi ásýnd garðsins og styður umbætur á garðinum.
bréf til bæjarráðs.pdf
12. 2209158 - Gjaldskrá skipulags- og byggingarmála 2023
Gjaldskrá skipulags- og byggingarmála 2023 lögð fram til umræðu. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að fela starfsmönnum sviðsins að útfæra gjaldskrá í samræmi við umræðu fundarins.
13. 2209170 - Gjaldskrá hunda og kattahald 2023
Gjaldskrá hunda- og kattahalds 2023 lögð fram til umræðu. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir, fyrir sitt leyti, gjaldskrá hunda- og kattahalds 2023. Endanlegri afgreiðslu er vísað til bæjarráðs.
14. 2209117 - Gjaldskrá meðhöndlun úrgangs 2023
Gjaldskrá meðhöndlun úrgangs 2023 lögð fram til umræðu. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur starfsmönnum sviðsins að vinna áfram að gjaldskrá fyrir meðhöndlun úrgangs í Fjarðabyggð í samráði við framkvæmdasvið.
Fundargerðir til staðfestingar
16. 2209010F - Fjallskilanefnd - 2
fundagerð fjallskilanefndar 14.9.2022 lögð fram til afgreiðslu

1. 2208084 - Starfs- og fjárhagsáætlun fjallskilanefndar 2023

Lagður fram rammi bæjarráðs að fjárhagsáætlun ársins 2023 ásamt reglum um gerð fjárhagsáætlunar Fjarðabyggðar 2023. Fjármálastjóri mun mæta á fundin og fara yfir áætlunargerðina. Fjallskilanefnd felur skipulags- og umhverfisfulltrúa ásamt fjallskilastjóra að ástandsskoða fjárréttir í Fjarðabyggð og gera verk- og kostnaðaráætlun á endurbótum.


2. 2208175 - Fjallskilasamþykkt SSA
Framlagt bréf Sambands sveitarfélaga á Austurlandi um endurskoðun fjallskilasamþykktar en hún hefur tekið breytingum frá því sem hún var upphaflega afgreidd í gegnum landbúnaðarnefnd og eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd. Fjallskilasamþykkt hefur ekki fengið formlega afgreiðslu í bæjarstjórn.

Bæjarráð vísaði fjallskilasamþykktinni til umfjöllunar fjallskilanefndar.

Fjallskilanefnd gerir tillögu að breytingum á 22.gr Fjallskilasamþykktar sveitarfélaga á austurlandi. Þar sem fram kemur að fé skuli ekki ganga á afrétt, upprekstrarheimalandi og/eða heimalandi annarra jarða eftir löggöngur. Nefndin álítur réttara að miða við dagsetningu t.d. 20. nóvember þar sem fullorðnar ær ganga oft í heimalandi eftir löggöngur við gott atlæti.

Fjallskilanefnd felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að koma tillögunni til stjórnar SSA.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 15:30
16.1. 2208084 - Starfs- og fjárhagsáætlun fjallskilanefndar 2023
16.2. 2208175 - Fjallskilasamþykkt SSA
Fundargerðir til kynningar
15. 2202061 - Fundargerðir Heilbrigðiseftirlits Austurlands 2022
Fundargerð 169. fundar Heilbrigðisnefndar Austurlands lögð til kynningar.
169. fundargerð.pdf
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:19 

Til bakaPrenta