| |
1. 2502033 - Fyrirhugaðar framkvæmdir Loðnuvinnslunnar | Lagt fram minnisblað EFLU verkfræðistofu vegna fyrirhugaðra breytinga á löndunarhúsi og löndunarbúnaði Loðnuvinnslunnar við Strandarbryggju og Innri löndunarbryggju á Fáskrúðsfirði. Hafnarstjórn tekur vel í erindi Loðnuvinnslunnar og vísar fjármögnun framkvæmdarinnar til fjárhagsáætlunar ársins 2026.
| | |
|
2. 2206100 - Öryggismál hafna | Yfirferð og umræða um stöðu mála á úrbótum í öryggismálum Fjarðabyggðarhafna og aðgengismál þeirra og takmörkun umferðar um athafnasvæði. Jafnframt rætt um, merkingar og búnað á og við bryggjur. Hafnarstjórn lýsir mikilli ánægju sinni með árangur í úrbótum á öryggismálum hafnanna þó verkefninu sé ekki lokið.
| | |
|
3. 2503122 - Tiltekt og fegrun umráðasvæða hafna | Fjallað um tiltekt og fegrun umráðasvæða hafnanna samhliða átakinu vor í Fjarðabyggð. Hafnarstjórn lýsir yfir ánægju með framgang í úrbótum á umhverfi hafnanna og hvetur til áframhaldandi fegrunar og bætingar á ásýnd hafnanna. | | |
|
5. 2505117 - Umsókn um lóð Hraun 12 | Umsókn um byggingarlóð að Hrauni 12, Móeyrarhöfn, Reyðarfirði. Hafnarstjórn felur hafnarstjóra að eiga viðræður við umsækjendur og afla frekari upplýsinga. | | |
|
6. 2503239 - Aðalfundur Cruise Iceland 2025 | Lögð fram fundargerð og gögn frá aðalfundi Cruise Iceland sem haldinn var 30.apríl síðastliðinn.
| CI-aðalfundur - 30-04-2025.pdf | | |
|
7. 2505143 - Starfs- og fjárhagsáætlun hafnarstjórnar 2026 | Farið yfir vinnu við fjárhagsáætlun ársins 2025 fyrir hafnarstjórn. Hafnarstjórn gerir ekki ráð fyrir breytingum á forsendum fjárhagsáætlunar frá því sem er fyrir árið 2025. | Reglur um fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar.pdf | Dagsetningar í fjárhagsáætlunarferli áætlunar ársins 2026.pdf | Skipulag vinnu við fjárhagsáætlun ársins 2026.pdf | | |
|
8. 2505039 - Samgönguáætlun 2026-2030 endurskoðun áætlunar - Hafnaframkvæmdir og sjóvarnir | Lagt fram bréf frá Vegagerðinni um endurskoðun samgönguáætlunar 2006-2030 en hægt er að sækja um styrki til frumrannsókna og sjávarvarna. Sviðsstjóra skipulags- og framkvæmdasviðs falið að fara yfir þörf á endurbótum sjóvarna og ganga frá umsókn til Vegagerðarinnar þar um. | Bréf - Endurskoðun samgönguáætlunar 2006-2030.pdf | | |
|
9. 2506055 - Uppsetning á flotbryggjum við Suðurbæi í Norðfirði | Jón Björn Hákonarson vék af fundi við umfjöllun og afgreiðslu dagskrárliðar. Framlagt erindi Hildibrands ehf. þar sem óskað er eftir stuðningi við uppsetningu og frágang flotbryggjufestingar við Suðurbæina á Barðsnesi til að auka og bæta aðgengi almennings að Gerpissvæðinu. Hafnarstjórn tekur vel í erindið fyrir sitt leyti með vísan til reglna um styrki til viðhalds og endgerðar á bryggjum og felur stjórnanda hafna að vera í samskiptum við bréfritara. | | |
|